Frestun aðalfundar 2020
Aðalfundur félagsins sem vera átti fimmtudaginn 2. apríl 2020 fellur niður um óákveðinn tíma vegna samkomubannsins. Við munum auglýsa það vel þegar fundurinn verður haldinn. Það gæti orðið í haust.
Aðalfundur félagsins sem vera átti fimmtudaginn 2. apríl 2020 fellur niður um óákveðinn tíma vegna samkomubannsins. Við munum auglýsa það vel þegar fundurinn verður haldinn. Það gæti orðið í haust.
Unnið var við grisjun á furuskóginum á Seldalshálsi við vestanverðan Selhöfða í góða veðrinu í gær. Félagið fékk liðsauka, þá Orra arborista og Hákon Aðalsteinsson. Stafafuruskógurinn þarna er gróðursettur snemmma á níunda áratug síðustu aldar. Grisjunarviðurinn verður nýttur í eldivið og kurl.
Í síðustu viku tók Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála út aðstæður í Gráhelluhraunsskógi v. kæru Hestamannfélagsins Sörla en Sörli kærði deiliskipulag svæðisins. Deilan stendur um tengingar gangandi vegfarenda inn í Gráhelluhraunsskóg sérstaklega sunnan megin. Leggur Sörli til að lokað verði fyrir umferð gangandi til suðurs í átt að athafnasvæði Sörla. Er það ekki í samræmi við…
DetailsStarfsmenn félagsins eru að ryðja snjó af helstu gönguleiðum í upplandinu það er að segja kringum Hvaleyrarvatn, Kaldárselsstíginn og göngustíginn í gegnum Gráhelluhraunsskóg. Á myndinni sést Jökull Gunnarsson skafa snjó af Kaldárselsstígnum í dag.