Rósasafn
Rósasafnið í Höfðaskógi er samstarfsverkefni Rósaklúbbs Garðyrkjufélags Íslands og Skógræktarfélags Hafnarfjarðar. Rósasafnið var formlega vígt á sumarsólstöðum árið 2005 af Jóhanni Pálssyni fyrrverandi garðyrkjustjóra Reykjavíkurborgar og rósaræktanda ásamt Samsoni B. Harðarsyni formanni Rósaklúbbsins. Guðni Ágústsson, þáverandi landbúnaðarráðherra, gróðursetti svo fyrstu „Jóhannsrósina“ árið eftir og opnaði rafrænan gagnagrunn um harðgerðar rósir sem klúbburinn vann. Sjá: http://gardurinn.is/default.asp?sid_id=26137&tre_rod=016&tId=1&qsr…
Details
