Gönguleið og áningastaðir.
Lionsklúbburinn Ásbjörn í Hafnarfirði lét útbúa reitinn og var verkið fjármagnað af Minningarsjóði Gísla S. Geirssonar, sem var félagi í klúbbnum og lést langt um aldur fram. Klúbburinn kostaði gerð bílastæðis, lagningu göngustígs upp á Húshöfðann, gerð áningarstaðar á höfðanum, kaup á bekkjum og fleira. Værðar-bílastæðið er við Kaldárselsveg ögn lengra til suðurs en hliðið að Þöll.
Værðarstundir
Ljóð eftir Jóhann Guðna Reynisson.
ort sérstaklega vegna þessa verkefnis.
I
Við upphaf göngu þinnar
úr gæfulindum streymir.
Og undir verndarvængjum,
þú væntingarnar geymir.
Þá blómgast vor og angar
og værðarstundir langar
þig vísdómsorðin dreymir.
II
Í lífsins værðarlundi
þú leitar til að skilja.
Magnaður í raunum
er máttur afls og vilja.
Unaðsgrænar grundir,
og gullnar sælustundir
gráma dagsins hylja.
III
Við ferðalok þú hvílist,
í hvelfdum kyrrðarboga,
og veist að eilífð alla
mun ævisól þín loga.
Þú lítur farna vegu
í lífi yndislegu
við lygna himinsvoga.