Viðarvinir verða með handverkssýningu
Viðarvinir verða með handverkssýningu á tálguðum, renndum og útskornum munum í Selinu, bækistöðvum félagsins og Þallar við Kaldárselsveg, milli kl. 10.00 – 18.00.
Viðarvinir verða með handverkssýningu á tálguðum, renndum og útskornum munum í Selinu, bækistöðvum félagsins og Þallar við Kaldárselsveg, milli kl. 10.00 – 18.00.
Viðarvinir verða með handverkssýningu á tálguðum, renndum og útskornum munum í Selinu, bækistöðvum félagsins og Þallar við Kaldárselsveg, milli kl. 10.00 – 18.00 laugardaginn kemur 7. júní. Nánari upplýsingar í síma félagsins: 555-6455.
Gróðrarstöðin Þölll er opin í dag, 1. júní – Sjómannadaginn, frá kl. 10.00 – 17.00. Síminn er: 555-6455 eða 894-1268 (Steinar). Mikið úrval af trjám og runnum eins og rósum, berjarunnum, kvistum, sígrænum lággróðri, kvistum, þekjandi runnum, ávaxtatrjám, skógarplöntum í bökkum o. fl. 15% afsláttur af öllum plöntum til félaga í skógræktarfélögum og Garðyrkjufélagi Íslands. Nú…
Um 15 manns mættu í fuglaskoðun félagsins í dag (31. maí 2014). 19 tegundir fugla sáust. Þær voru: skógarþrestir, svartþrestir, starar, maríuerlur, þúfutittlingar, auðnutittlingar, músarrindill, glókollar, stelkur, hrossagaukar, stokkönd, duggendur, toppendur, álftir, sílamáfar, svartbakar, hetturmáfar, kría og rúsínan í pylsuendanum; bæjasvala. Krossnefir og heiðlóa sáust svo seinna um daginn við Þöll. Glókollar eru með algengustu…
Hin árlega fuglaskoðun í Höfðaskógi og við Hvaleyrarvatn. Lagt af stað frá bækistöðvum félagsins og Þallar við Kaldárselsveg kl.10.00.
Opið er í Þöll í dag fimmtudaginn 29. maí, Uppstigningadag, frá kl. 10.00 – 17.00. Síminn er 555-6455. Fyrirspurnir má senda á: steinsh@mmedia.is. Eigum mikið úrval af trjám, skrautrunnum, rósum, skógarplöntum, þekjandi runnum, kvistum, reynitegundum, berjarunnum, ávaxtatrjám, sígrænum trjám og runnum, vafningsviði o.fl. Þöll selur ekki sumarblóm né matjurtaplöntur. 15% afsláttur til allra félaga í skógræktarfélögum…
Minnum á hina árlegu fuglaskoðunarferð félagsins á laugardaginn kemur 31. maí/kosningadaginn. Við leggjum af stað kl. 10.00 frá Þöll við Kaldárselsveg. Leiðsögumenn verða Hannes Þór Hafsteinsson sem er landskunnur fuglaskoðari og Steinar Björgvinsson. Gangan tekur rúma klukkustund. Þetta er létt og róleg ganga eftir skógarstígum í Höfðaskógi við Hvaleyrarvatn. Takið með ykkur sjónauka. Boðið verður…
Hin árlega fuglaskoðun félagsins verður laugardaginn kemur 31. maí kl. 10.00. Lagt af stað frá bækistöðvum félagsins og Þallar kl. 10.00. Hafið með ykkur sjónauka. Nánari upplýsingar í síma: 555-6455. Myndin sýnir hettusöngvara kvk sem Björgvin Sigurbergsson tók í Höfðaskógi.
Gróðrarstöðin Þöll er opin alla virka daga frá kl. 09.00 – 18.00. Mikið úrval af trjám og runnum, rósum, kvistum, skógarplöntum, berjarunnum, ávaxtatrjám, limgerðisplöntum, klifurrunnum, þekjuplöntum o.fl. Þöll selur ekki sumarblóm né matjurtir. Síminn í Þöll er 555-6455 eða 894-1268 (Steinar).
Gróðrarstöðin Þöll er opin í dag, föstudaginn 23. maí, frá kl. 09.00 – 18.00. Laugar- og sunnudag er opið frá kl. 10.00 – 17.00. Síminn er: 555-6455 eða 894-1268 (Steinar). Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á steinsh@mmedia.is eða inn á Facebook síðu Þallar (Gróðrarstöðin Þöll).