Jólatréin komin
Vantar þig jólatré, furugreinar, eldivið eða hurðarkrans? Erum við í dag, sunnudaginn 25. nóv 2018, til kl. 16.00.
Vantar þig jólatré, furugreinar, eldivið eða hurðarkrans? Erum við í dag, sunnudaginn 25. nóv 2018, til kl. 16.00.
Skógræktarfélag Hafnarfjarðar selur jólatré og greinar til skreytinga. Hafið samband í síma: 555-6455, 894-1268 (Steinar) eða 849-6846 (Árni) ef ykkur vantar tré eða greinar núna í nóvember. Einnig má senda fyrirspurnir og pantanir á netfangið: skoghf@simnet.is Jólatrjáasala félagsins í Þöll hefst svo formlega helgina 8. og 9. desember. Opið verður helgarnar 8.- 9. desember…
Um 100 manns mættu í kvöldgöngu skógræktarfélagsins og Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins. Gangan var í anda hrekkjavöku. Nokkrir draugar og aðrir vættir skógarins létu sjá sig í skóginum. Leiðsögn var í höndum Drag-skúla. Allir fengu heitt kakó og kleinur að göngu lokinni. Skógræktarfélagið og Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim sem mættu kærlega fyrir komuna. Einnig vilja félögin…
Kvöldganga Krabbameinsfélags Höfuðborgarsvæðisins um skógarstíga Skógræktarfélags Hafnarfjarðar, þriðjudaginn 30. október kl. 19:30. Krabbameinsfélag Höfuðborgarsvæðisins og Skógræktarfélag Hafnarfjarðar bjóða til skógargöngu nk. þriðjudag, 30. október, kl. 19:30. Safnast verður saman við Gróðrarstöðina Þöll við Kaldárselsveg og þaðan verður gengið um skógarsvæði Skógræktarfélags Hafnarfjarðar. Við upphaf göngunnar flytur Anna Borg stutt ávarp og að því loknu mun Steinar…
Kæru félagar. Innheimta á árgjaldi fyrir árið 2018 er farin af stað. Stofnaðar hafa verið kröfur sem birtast í heimabanka hvers og eins. Árgjaldið er aðeins kr. 2.500,-. Með því að vera félagi í Skógræktarfélagi Hafnarfjarðar styrkir þú starfsemi félagsins en félagið sér um skógrækt, stígagerð, hreinsun og fleira við Hvaleyrarvatn, í Höfðaskógi, í Gráhelluhrauni…
Enn er hægt að gróðursetja! Eigum til ýmsar tegundir trjáa og runna í pottum eins og sýrenur, reynitegundir, hlyni, ask, berjarunna, amal, sígrænt, rósir og fleira. Nú förum við að ganga frá plöntunum fyrir veturinn. Verðum þó áfram með sígrænt á boðstólum. Í dag, sunnudaginn 7. október 2018 verður opið frá kl. 11.00 til kl.…
Laugardagsmorguninn 15. september 2018 mættu rúmlega tuttugu manns og gróðursettu í brekkurnar skammt fyrir vestan Hvaleyrarvatn þar sem áður var jarðvegstippur og öskuhaugar bæjarins. Gróðursettar voru tæplega eitt þúsund 3-4 ára birki, elri og asparplöntur. Þetta er níunda árið í röð sem Skógræktarfélagið efnir til sjálfboðaliða-gróðursetningardags. Að gróðursetningu lokinni var öllum boðið í heita…
Opið til kl. 15.00 laugardaginn 22. september 2018. Eigum úrval af trjám og runnum í pottum. Síminn er: 555-6455 eða 894-1268. 20% afsláttur af öllum plöntum til félaga í skógræktarfélögum og til félaga í Garðyrkjufélagi Íslands.
Gróðrarstöðin er opin fimmtudaginn 20. september 2018 frá kl. 10.00 – 17.00. Allir félagar í skógræktarfélögum og Garðyrkjufélagi Íslands fá 20% afslátt af öllum plöntum. Eigum enn mikið úrval af runnum og trjám í pottum eins og reyni, sýrenum, berjarunnum, rósum, kórónum, þekjandi plöntum, toppum og fleiru. Erum við Kaldárselsveg í Hafnarfirði. Síminn er: 555-6455…
Sjálfboðaliða – gróðursetningardagurinn er á laugardaginn kemur 15. september 2018. Við byrjum kl. 10.00. Við hittumst á bílastæðinu við sparkvellina skammt fyrir vestan Hvaleyrarvatn. Við mætum með plönturnar og verkfæri og þið mætið með góða skapið og vinnugleðina. Gróðursett verður í brekkurnar við Hamranes þar sem tippurinn var áður (gömlu haugarnir). Svo býður félagið auðvitað…