Fagráðstefna skógræktar
Starfsmenn félagsins sátu fagráðstefnu skógræktargeirans sem haldin var á Húsavík að þessu sinni. Þema ráðstefnunnar var tegunda-, kvæma- og klónaval í skógrækt. Ráðstefnan þótti heppnast einstaklega vel og var vel sótt.
Starfsmenn félagsins sátu fagráðstefnu skógræktargeirans sem haldin var á Húsavík að þessu sinni. Þema ráðstefnunnar var tegunda-, kvæma- og klónaval í skógrækt. Ráðstefnan þótti heppnast einstaklega vel og var vel sótt.
Á síðastliðnum árum hafa svartþrestir orðið all algengir og áberandi garð- og skógarfuglar á höfuðborgarsvæðinu. Yfir 10 svartþrestir koma í æti á hlaðinu við bækistöðvar félagsins í Höfðaskógi þessa dagana.
Fundarstjóri, kæru félagar og vinir Eftir tiltölulega mildan vetur voraði seint og illa. Var því gróður seinni ferðinni en oft áður. Segja má að ekki hafi farið að hlýna að ráði fyrr en í lok júní. Eftir það var sumarið all hlýtt. Þrátt fyrir þetta bar lítið á kali og trjávöxtur var almennt góður á…
Aðalfundur Skógræktarfélags Hafnarfjarðar, 7. mars 2012. Fundarstjóri – Góðir félagar og gestir! Samkvæmt venju vil ég byrja á að minnast látinna félaga. Frá síðasta aðalfundi félagsins sem haldinn var í mars á síðasta ári, hafa 5 félagsmenn fallið frá. Þessir ágætu félagar okkar hétu: Guðlaug Sigurðardóttir, Guðrún Hjörleifsdóttir, Guðrún Ingvarsdóttir, Hrund Helgadóttir og Þorvarður Magnússon.…
Ungmenni á aldrinum 16 til 20 ára hafa nokkur undanfarin ár komið til starfa hjá Skógræktarfélaginu á sumrin fyrir tilstuðlan samfélagsverkefnisins „Margar hendur vinna létt verk“ sem Landsvirkjun hefur haldið úti um árabil. Þessi ungmenni hafa jafnan reynst vandanum vaxin og sýnt dugnað og áreiðanleika í öllum verkefnum sem þeim hafa verið falin. Störfin sem…
Tvö plöntusöfn eru í Höfðaskógi við Hvaleyrarvatn í umsjón Skógræktfélags Hafnarfjarðar. Um er að ræða söfn með lifandi plöntum undir berum himni. Öllum er frjálst að fara um og skoða plöntusöfnin svo fremi að gengið sé vel um. Bannað er að klippa eða brjóta greinar af sýningareintökum. Lausaganga hunda er bönnuð og eins og annars…
Trjásafnið var formlega vígt árið 1996 af Stefáni Pálssyni þáverandi bankastjóra Búnaðarbankans á 50 ára afmæli Skógræktarfélags Hafnarfjarðar. Trjásafnið var í upphafi gjarnan nefnt „trjásýnilundur“. Trjásafnið er í hlíðunum norður og austur af Hvaleyrarvatni. Trjásafnið inniheldur barrviði, lauftré og runna. Trjágróðurinn í safninu er gróðursettur meðfram stígum í skóginum. Megin tilgangur með trjásafninu er að…
Rósasafnið í Höfðaskógi er samstarfsverkefni Rósaklúbbs Garðyrkjufélags Íslands og Skógræktarfélags Hafnarfjarðar. Rósasafnið var formlega vígt á sumarsólstöðum árið 2005 af Jóhanni Pálssyni fyrrverandi garðyrkjustjóra Reykjavíkurborgar og rósaræktanda ásamt Samsoni B. Harðarsyni formanni Rósaklúbbsins. Guðni Ágústsson, þáverandi landbúnaðarráðherra, gróðursetti svo fyrstu „Jóhannsrósina“ árið eftir og opnaði rafrænan gagnagrunn um harðgerðar rósir sem klúbburinn vann. Sjá: http://gardurinn.is/default.asp?sid_id=26137&tre_rod=016&tId=1&qsr…
Laugardaginn 3. maí 2008 var formlega tekin í notkun útikennslustofa í fallegum lundi við Húshöfða, á athafnasvæði Skógræktarfélags Hafnarfjarðar. Hjónin Hörður Zóphaníasson og Ásthildur Ólafsdóttir gáfu Skógræktarfélagi Hafnarfjarðar peningagjöf á 60 ára afmæli félagsins árið 2006. Gjöfinni fylgdi sú ósk þeirra hjóna að hún yrði notuð til að fræða ungt fólk um gildi skógræktar og…
Sléttuhlíð og hluti Gráhelluhrauns tilheyrðu áður fyrr upplandi Hamarskots, sem var ein af hjáleigum kirkjustaðarins í Görðum. Kotið var nokkurnvegin þar sem Flensborgarskóli stendur í dag á Hamrinum. Hjáleigubændur í Hamarskoti höfðu selstöðu í Hamarskotsseli, sem var nánast samtengt Setbergsseli vestan Háanefs og norðan Sléttuhlíðarhorns. Þar er merkilegur hellir í hraunrás sem er opinn í…