Þöll opin um Hvítasunnuna
Gróðrarstöðin Þöll verður opin alla Hvítasunnuhelgina frá kl. 10.00 til 17.00. Annars er opið virka daga frá kl. 09.00 til 18.00. Eigum til úrval skógarplantna, rósa, lyngrósa, berjarunna, sýrena, þekjuplantna og fleira.
Gróðrarstöðin Þöll verður opin alla Hvítasunnuhelgina frá kl. 10.00 til 17.00. Annars er opið virka daga frá kl. 09.00 til 18.00. Eigum til úrval skógarplantna, rósa, lyngrósa, berjarunna, sýrena, þekjuplantna og fleira.
Þöll, gróðrarstöð hefur opnað. Opið virka daga í maí 2020 frá kl. 09.00 til 18.00. Um helgar frá kl. 10.00 til 17.00. Erum við Kaldárselsveg í Hafnarfirði. Sendið fyrirspurnir á netfangið skoghf@simnet.is. Þöll ehf framleiðir og selur tré og runna til skógræktar, í sumarhúsalóðir og í garða og opin svæði.
Að gefnu tilefni viljum við benda á að óheimilt er að kveikja elda í öllu upplandi Hafnarfjarðar. Á það einnig við um varðelda. Nú er þurrkur og mikil sina og gróðurinn þurr. Við Hvaleyrarvatn eru 3 grill til notkunar fyrir almenning. Farið samt varlega. Ef þið verðið vör við eld í upplandinu, skóglendum félagsins hafið…
Gróðrarstöðin Þöll ehf. opnar aftur af vetrardvala laugardaginn 9. maí 2020. Sendið fyrirspurnir á netfangið skoghf@simnet.is. Þöll framleiðir og selur tré og runna, skógarplöntur, berjarunna, tré í hnaus, rósir, sígrænt og fleira.
Fuglaskoðun félagsins sem vera áttu núna á laugardaginn 25. apríl hefur verið aflýst. En við hvetjum ykkur til að skoða fugla engu að síður. Margar tegundir fugla hafa sést í Höfðaskógi, við Hvaleyarvatn og nágrenni í gegnum tíðina. Sumar mjög sjaldgæfar eins og brjósttittlingur, brúnheiðir og rindilþvari. Margir fuglaljósmyndarar hafa komið í Þöll og tekið…
Óskum félögum og öðrum velunnurum gleðilegra páska. Óvenju mikið hefur verið um gesti í skógum félagsins að undanförnu. Við bendum útivistarfólki á að skógar félagsins eru margir og víðfeðmir, sjá flipan „svæðin“ hér efst á síðunni. Til skrá sig félagið þarf bara að fylla út formið sem er undir flipanum „um félagið“ og svo „skrá…
Nú er meira og minna allur snjór horfinn í skógum félagsins. Stígarnir eru þurrir enda frost. Hvaleyrarvatnsvegur er með besta móti enda nýlega búið að hefla hann og fylla í holur. Reyndar er aftur farið að snjóa! Hægt er að gerast félagi í Skógræktarfélagi Hafnarfjarðar með því að fylla út í umsóknar-formið sem er undir…
Aðalfundi Skógræktarfélags Hafnarfjarðar sem vera átti á morgun, fimmtudaginn 2. apríl, er frestað um óákveðinn tíma vegna samkomubanns. Aðalfundurinn verður auglýstur vel þegar þar að kemur.
Nú ættu félagar í Skógræktarfélagi Hafnarfjarðar að vera búnir að fá í hendur félagsskírteini 2020 – 2021. Það var sent út ásamt aðalfundarboði fyrir um 2 vikum síðan. Eins og áður hefur komið fram frestast aðalfundur félagsins um óákveðinn tíma. Fjöldi fyrirtækja í „græna geiranum“ veita félögum staðgreiðslu-afslátt gegn framvísun félagsskírteinis. Hægt er að gerast…
Aðalfundur félagsins sem vera átti fimmtudaginn 2. apríl 2020 fellur niður um óákveðinn tíma vegna samkomubannsins. Við munum auglýsa það vel þegar fundurinn verður haldinn. Það gæti orðið í haust.