Fundargerð stjórnar Skógræktarfélags Hafnarfjarðar (2/2026)
Haldinn í Selinu þann 29. apríl 2026, kl 17.30
Mætt: Sigurður Einarsson, Árni Þórólfsson, Hallgrímur Jónasson, Ingvar Viktorsson, Jónatan Garðarsson, ásamt Steinari Björgvinssyni framkvæmdastjóra
1. Stöðuyfirlit
Plöntusalan var opnuð fyrir hálfum mánuði og ágæt sala í góðu veðri. 5 ungmenni frá Veraldarvinum hófu störf fyrir félagið í dag. Starfsmönnum líst vel á hópinn, þau hófu störf á að ganga frá efni sem féll til við grisjun í vetur. Ungmennin eru félaginu að kostnaðarlausu.
Óvenju mikið rusl virðist hafa safnast fyrir í vegköntum og víðar. Svo virðist sem rusl sé skilið eftir af ásetningi í upplandinu félaginu til ama. Fyrir liggur að ákveðinn aðili skilur eftir rusl og hefur félagið tilkynnt það til lögreglu og bæjarins.
2. Stjórn skipar með sér verkum í kjölfar aðalfundar
Stjórn skiptir með sér verkum með eftirfarandi hætti; Sigurður Einarsson, formaður, Gyða Hauksdóttir, varaformaður, Árni Þórólfsson, gjaldkeri, Hallgrímur Jónasson, ritari og meðstjórnendur, Jónatan Garðarsson, Ingvar Viktorsson og Magnús Gunnarsson.
3. Samningur við bæinn – eftirfylgni
Nýr endurskoðaður samningur verður lagður fyrir bæjarráð á næstu dögum. Nýr samningur er tillaga bæjarins eftir fund Sigurðar formanns, Árna gjaldkera og Jónatans með bæjarstjóra Valdimari Víðissyni og Sigurði Haraldssyni.
4. Reiðstígur meðfram Stórhöfða
Formaður kynnti stjórn frumhönnun Landslags að legu reiðstígs við Stórhöfða sem bærinn hefur gefið framkvæmdaleyfi fyrir. Stjórn gerir ekki athugasemd við leguna. Félagið gerir ráð fyrir bótum vegna trjáa sem fella þarf við lagningu stígsins.
5. Önnur mál
Stefnt að því að óska eftir fundi með Berglindi Guðmundsdóttur, arkitekt á skrifstofu skipulagsfulltrúa og ræða skipulag í upplandi Hafnarfjarðar, til suðurs frá Hamranesi, vestan við svæði félagsins.
Ýmiss fleiri mál rædd án þess að bókunar sé þörf.
