Fundargerð stjórnar Skógræktarfélags Hafnarfjarðar (4/2025)
Haldinn í Selinu þann 24. september 2025, kl 17.30
Mætt: Sigurður Einarsson (formaður), Árni Þórólfsson, Hallgrímur Jónasson (ritari), Ingvar Viktorsson, Jónatan Garðarsson, Gyða Hauksdóttir ásamt Steinari Björgvinssyni framkvæmdastjóra
1 Stöðuyfirlit frá framkvæmdarstjóra
Óvenju fáir fulltrúar voru frá félaginu sem tóku þátt í aðalfundi Skógræktarfélags Íslands að Varmalandi, Borgarfirði í lok ágúst s.l.
Tvær göngur voru í júlí, annars vegar ganga í tengslum við Heilsubæinn Hafnarfjörð og ganga á vegum Garðyrkjufélags Íslands í tilefni af 140 ára afmæli þess.
Í byrjun ágúst komu fulltrúar Norræna rósafélagsins í heimsókn, alls um 50 manns og var boðið uppá léttar veitingar.
Sjálfboðaliðadagurinn var laugardaginn 20. september s.l. ágætlega mætt, 500 plöntur gróðursettar.
Fyrir liggur að skipta þarf um járn á þaki Selsins, húss félagsins, ráðist verður í það um mánaðarmótin. Fram komu tillögur um bætta útfærslu við framkvæmdina.
Plöntusala var líklega meiri í ár en á síðast ári.
Tvö gróðurhús eru fullbúin.
Mat starfsmanna er að mikið hafi verið af fólki í skóginum í allt sumar.
Fyrirhuguð er haustganga í samstarfi við Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar. Óvíst er að félagið hafi tök á að verða aðili að göngunni.
2. Heimsókn bæjarstjórnar 5.6. – eftirfylgni.
Rætt um mikilvægi þess að fylgja eftir heimsókn bæjarstjórnar sem tókst mjög vel. Ákveðið að eiga fund með bæjarstjóra og viðeigandi starfsmanni/mönnum bæjarins til að fylgja eftir hagsmunamálum félagsins, s.s. endurskoðun á samninginum við bæinn. Starfsmenn og stjórnarmenn munu vinna saman að minnisblaði sem gerir stuttlega grein fyrir mikilvægi starfs félagsins í upplandi Hafnarfjarðar og þeirri þjónustu sem félagið vinnur fyrir bæinn, með áherslu á endurskoðun á umfangi þess. Minnisblaðið verður lagt fyrir bæjarstjóra og hans fólk, sem fyrst vegna vinnu að fjárhagsáætlun bæjarins fyrir árið 2026.
3. Starfið fram undan – jólin.
Starfsmenn vinna að undirbúningi jólatrjáasölu fyrir jólin, gert ráð fyrir opnun helgina 6. og 7. desember og að megnið af sölunni fari fram þá og helgarnar 13. og 14. og 20. og 21. desember.
Fram kom að áhugi er meðal félagsmanna félagsins að taka þátt í sölu félagsins fyrir jólin. Því er fagnað og verður þeim sem óska þess gefin kostur á að taka þátt.
4. Önnur mál
Jónatan formaður Skógræktarfélags Íslands sagði frá Tré ársins, sem er sitkagreni sem er staðsett í Jórukletti í miðri Ölfusá við Selfoss.
