Opið til kl. 18.00 laugardaginn 22.júní!
Gróðrarstöðin er opin í dag, föstudaginn 22. júní 2018, frá kl. 09.00 – 18.00. Kínareynir, kóreulífviður, síberíuþyrnir, japanskvistur, kanadalífviður, alpareynir og fleira.
Gróðrarstöðin er opin í dag, föstudaginn 22. júní 2018, frá kl. 09.00 – 18.00. Kínareynir, kóreulífviður, síberíuþyrnir, japanskvistur, kanadalífviður, alpareynir og fleira.
Skógardagurinn "Líf í lundi" verður haldinn hátíðlegur víða um land laugardaginn 23. júní 2018. Sjá nánar á: https://www.skogargatt.is/ Dagskrá Skógræktarfélags Hafnarfjarðar er eftirfarandi: Líf í lundi Laugardaginn 23. júní 2018 Við Þöll, Kaldárselsvegi í Höfðaskógi, Hafnarfirði · Kl. 14.00: Setning · Kl. 14.30 – 15.30: Skógurinn í nálægð og fjarlægð. Skógarganga með Árna Þórólfssyni skógarverði um…
Gróðrarstöðin er opin frá kl. 09.00 – 18.00 virka daga í júní 2018. Eigum úrval af trjám og runnum í garða, sumarhúsalönd og til skógræktar. Berjarunnar, rósir, sýrenur, reynitegundir, stærri tré í hnausum, skógarplöntur, toppar, limgerðisplöntur og fleira. Erum við Kaldárselsveginn í Hafnarfirði. Allir félagar í skógræktarfélögum og Garðyrkjufélagi Íslands fá 15% afslátt af öllum…
Viðarvinir, sem er hópur handverksfólks í Hafnarfirði, verða með sýningu á ýmsum tálguðum, útskornum og renndum munum úr tré í Þöll, bækistöð Skógræktarfélags Hafnarfjarðar, laugardaginn 2. júní frá kl. 10.00 – 18.00. Allir velkomnir.
Gróðrarstöðin er opin, mánudaginn 21. maí 2018 annan í hvítasunnu, frá kl. 10.00 – 17.00.
Utanvegahlaup Hauka fer fram núna annan í Hvítasunnu. Starfsmenn félagsins hafa unnið að lagfæringu á stígum hér í upplandinu sem eru hluti af hlaupaleiðinni. Almennings-íþróttadeild Hauka hefur lagt félaginu til fjárstuðning til verksins. Unnið var að gerð steinbrúar yfir Grófarlæk í Grófargili í vikunni. Á myndinni sést Árni Þórólfsson við brúnna. Ljósmynd: Jökull Gunnarsson.

Laugardaginn 21. apríl síðastliðin efndi félagið til fuglaskoðunar um Höfðaskóg og við Hvaleyrarvatn. Um 25 manns mættu en gangan var hluti af dagskrá „Bjartra daga“ sem haldnir voru í Hafnarfirði dagana 18. – 22. apríl. Hannes Þór Hafsteinsson og Steinar Björgvinsson voru leiðsögumenn. Eftirtaldar fuglategundir sáust eða það heyrðist í þeim þennan dag. Starar, skógarþrestir,…
Laugardaginn 21. apríl kl. 11. Fuglaskoðun í Höfðaskógi. Þekkir þú fiðraða nýbúa skógarins? Hannes Þór Hafsteinsson og Steinar Björgvinsson verða leiðsögumenn í fuglaskoðunarferð. Lagt af stað frá Þöll við Kaldárselsveg. Takið með ykkur sjónauka. Gangan tekur um eina og hálfa klukkustund. Kaffi og spjall í Þöll að göngu lokinni. Nánari upplýsingar í síma: 555-6455. Einnig…
Hvítasunnuhlaup Hauka hefur verið haldið nú í all nokkur ár. Um er að ræða vinsælasta utanvegahlaup landsins. Stór hluti hlaupsins fer fram á athafnasvæði Skógræktarfélags Hafnarfjarðar. Almenningsíþróttadeild Hauka hefur styrkt Skógræktarfélagið og hefur styrkfénu verið varið til lagfæringa og viðhalds á hlaupleiðunum á umsjónarsvæði Skógræktarfélagsins.