Erum við til kl. 16.00, 11. maí 2019
Við erum við í Þöll til kl. 16.00. Eigum til eitthvað af hnausplöntum, hekkplöntum og fleira.
Við erum við í Þöll til kl. 16.00. Eigum til eitthvað af hnausplöntum, hekkplöntum og fleira.
Þöll opnar aftur formlega af vetrardvala laugardaginn 18. maí 2019 að öllu óbreyttu. Ef ykkur vantar nauðsynlega plöntur fyrir þann tíma má senda fyrirspurnir á póstfangið skoghf@simnet.is. Síminn í Þöll er: 555-6455. Sími framkvæmdastjóra (Steinar) er 894-1268. Skógarvörður (Jökull) er í síma: 772-5211. Árni Þórólfsson er í síma: 849-6846. Gleðilegt sumar.
Í kringum 45 manns mættu á aðalfund félagsins síðastliðinn fimmtudag. Gunnar Svavarsson var kjörinn fundarstjóri. Sigurður Einarsson formaður félagsins flutti skýrslu stjórnar og Steinar Björgvinsson skýrslu framkvæmdstjóra. Árni Þórólfsson gjaldkeri fór yfir ársreikning félagsins. Að loknum umræðum um skýrslu formanns, framkvæmdastjóra og kynningu á ársreikningi félagsins var ársreikningurinn borinn undir fundinn og samþykktur samhljóða.…
Aðalfundur Skógræktarfélags Hafnarfjarðar verður haldinn fimmtudaginn 28. mars 2019 í Apótekinu, Hafnarborg, Strandgötu 34. Fundurinn hefst kl. 20.00. Að loknum venjulegum aðalfundarstörfum mun Brynhildur Bjarnadóttir, Háskólanum á Akureyri flytja erindi sem hún nefnir "kolefnisbinding í trjám og gróðri". Félagið býður upp á kaffiveitingar í hléi. Takið daginn frá. Stjórnin.
Undanfarnar vikur hafa starfsmenn félagsins unnið að grisjun og snyrtingu skóga félagsins m.a. í Langholti, Kjóadalshálsi og víðar. Einnig hefur verið farið um vegi í upplandinu og tré og runnar sem skaga út á akvegi og göngustíga söguð, klippt og snyrt. Þessi mynd var tekin 30. janúar 2019 í Langholtinu skammt sunnan við Þormóðshöfða.…
Starfsmenn félagsins hafa síðustu daga m.a. rutt snjó af stígnum í kringum Hvaleyrarvatn. Í gær (fimmtudaginn 24. janúar 2019) var göngustígurinn í Gráhelluhraunsskógi einnig ruddur. Eftir að Halldóra og Þórólfur gáfu félaginu sexhjól ásamt snjótönn höfum við getað rutt snjó af helstu gönguleiðum í skóginum til að auðvelda útivistarfólki að njóta svæðisins yfir háveturinn. …
Eins og mörg undanfarin ár töldu Hannes Þór Hafsteinsson og framkvæmdastjóri félagsins Steinar Björgvinsson uppland Hafnarfjarðar nú í byrjun árs 2019. Svæðið kallast "Hafnarfjörður austan Reykjanesbrautar". Mest sást af svartþresti, skógarþresti, stara, auðnutittling og krossnef. Einnig sáust nokkrir hrafnar, rjúpur, stokkendur og grágæsir. Tveir smyrlar sáust, annar við Kaldársel og hinn við Hvaleyrarvatn. Músarrindill…
Gleðilega hátíð. Jólatrjáasalan hefur lokað í ár. Við þökkum viðskiptavinum okkar, félögum og velunnurum öllum gleðilegra jóla og farsæls skógræktarárs 2019. Stjórn og starfsmenn Skógræktarfélags Hafnarfjarðar og Þallar ehf.
Jólatrjáasalan er lokuð helgina 22. og 23. des. 2018. Við þökkum félögum og velunnurum kærlega samskiptin á árinu sem er að líða. Gleðilegt skógræktarár 2019.
Opið föstudaginn 21. des. 2018 frá kl. 10.00 – 19.00. Fengum viðbót af furu í gær. Einnig jólavendir, leiðisgreinar og fleira. Lokað meira og minna um helgina. Síminn er: 555-6455 eða 894-1268. Netfang: skoghf@simnet.is