Jólatrjáa og skreytingasala
Jólatrjáa- og skreytingasala félagsins hefst upp úr miðjum nóvember að öllu óbreyttu. Hægt er senda inn fyrirspurnir og pantanir á netfangið: skoghf@simnet.is Nánar auglýst síðar.
Jólatrjáa- og skreytingasala félagsins hefst upp úr miðjum nóvember að öllu óbreyttu. Hægt er senda inn fyrirspurnir og pantanir á netfangið: skoghf@simnet.is Nánar auglýst síðar.
Búið er að stofna kröfur í heimabanka vegna árgjalds 2026. Árgjaldið er það sama og í fyrra eða kr. 5.000,-. Félagar njóta afsláttar í flestum gróðrarstöðvum og garðyrkjumiðstöðvum landsins. T.d. fá félagsmenn 15% afslátt af öllum plöntum og jólatrjám í Þöll. Með því að borga árgjald og gerast félagi styður þú stígagerð, hreinsun, skógrækt og…
Í tilefni áttatíu ára afmælis félagsins kom út sérstakt afmælisrit í félagsins innan í Fjarðarfréttum núna um mánaðarmótin. Fullt af skemmtilegu og fróðlegu efni um starfsemi félagsins síðastliðin 80 ár. Sjá hér: https://vefblad.fjardarfrettir.is/p/fjardarfrettir/1-10-2026/r/4/6-7/6849/2471926
Um 25 manns mættu á laugardaginn var og gróðursettu rúmlega sex hundruð trjáplöntur af ýmsum tegundum upp á gömlu haugunum/jarðvegstippnum við Hamranes. Boðið var upp á hressingu í Þöll að gróðursetningu lokinni. Takk fyrir komuna og ykkar framlag sem mættuð og tókuð þátt.
Laugardaginn 19. september 2026 verður hinn árlegi sjálfboðaliðadagur félagsins k. 11.00 – 13.00. Gróðursett verður í brekkurnar á móts við Hamranesflugvöll þar sem brann í febrúar síðastliðnum. Trjáplöntur og verkfæri á staðnum. Allir velkomnir. Boðið verður upp á hressingu í Þöll að gróðursetningu lokinni.
Fjölskylduhátíð Skógræktarfélags Hafnarfjarðar fer fram laugardaginn 27. júní kl. 14.00 – 17.00 við Þöll, Kaldárselsvegi. Pálmar Örn Guðmundsson trúbador kemur og tekur lagið. Ellen og Pálmar verða með salsadanskennslu. Blómaverkstæði barnanna verður á sínum stað. Boðið verður upp á grillaðar pulsur. Larpið kíkir í heimsókn og blöðrulistamaður mætir á svæðið. Hliðið inn á bílastæðið við…
Fjölskyldudagurinn „Líf í lundi“ verður laugardaginn 27. júní frá kl. 14.00 – 17.00 við Þöll. Boðið verður upp á skemmtun og veitingar. Allir velkomnir. Nánar auglýst síðar.
Aðalfundur félagsins verður á morgun, þriðjudaginn 14. apríl, í Apótekinu, Hafnarborg, Strandgötu 34. Fundurinn hefst kl. 20.00. Að loknum venjulegum aðalfundarstörfum mun Guðríður Helgadóttir, Gurrý, flytja erindi í máli og myndum um fjölær blóm og aðrar jurtir sem henta í skógajaðra og sem undirgróður í skógi eða annars staðar undir trjám.
Aðalfundur Skógræktarfélags Hafnarfjarðar verður haldinn þriðjudaginn 14. apríl næstkomandi kl. 20.00 í Apótekinu, Hafnarborg, Strandgötu 34, Hafnarfirði. Gengið inn frá Strandgötu. Kl. 20.00 – 20.50 Venjuleg aðalfundarstörf. Kaffihlé Kl. 21.10 – 21.45 Guðríður Helgadóttir, Gurrý garðyrkjufræðingur með meiru flytur erindi um fjölæringa sem henta í skógajaðra og skógarbotninn. Sjá nánar á heimasíðu félagsins:…
Fulltrúafundur skógræktarfélaganna fór fram í húsakynnum Íshesta laugardaginn 28. mars. Á fjórða tug fulltrúa víðs vegar af landinu mættu á fundinn. Flutt voru fróðleg erindi og boðið upp á fyrirspurnir. Að loknum fundinum kl. 14.30 bauð Skógræktarfélag Hafnarfjarðar þátttakendum til veislu í bækistöðvum sínum hinum megin við Kaldárselsveginn en í ár eru 80 ár frá…