Guðríður verður með erindi um fjölærar jurtir á aðalfundinum.
Aðalfundur félagsins verður á morgun, þriðjudaginn 14. apríl, í Apótekinu, Hafnarborg, Strandgötu 34. Fundurinn hefst kl. 20.00. Að loknum venjulegum aðalfundarstörfum mun Guðríður Helgadóttir, Gurrý, flytja erindi í máli og myndum um fjölær blóm og aðrar jurtir sem henta í skógajaðra og sem undirgróður í skógi eða annars staðar undir trjám.
