Skírn í skóginum
Skógar- og útivistardagur fjölskyldunnar sem haldinn var sunnudaginn 27. júlí var vel heppnaður. Fjölmenni var í Höfðaskógi og var barn borið til skírnar í Bænalundi í upphafi dagsins. Séra Jón Helgi Þórarinsson sóknarprestur í Hafnarfjarðarkirkju flutti stutta hugvekju og síðan var stúlkubarnið skírt og hlaut nafnið Björk Elizabet Mikaelsdóttir. Það var amma barnsins Gyða Hauksdóttir,…






