Félagið og Þöll með pósthólf
Skógræktarfélag Hafnarfjarðar og Gróðrarstöðin Þöll ehf. hafa nú fengið pósthólf. Póstfangið er nú: Skógræktarfélag Hafnarfjarðar eða Gróðrarstöðin Þöll Pósthólf 248 222 Hafnarfirði
Skógræktarfélag Hafnarfjarðar og Gróðrarstöðin Þöll ehf. hafa nú fengið pósthólf. Póstfangið er nú: Skógræktarfélag Hafnarfjarðar eða Gróðrarstöðin Þöll Pósthólf 248 222 Hafnarfirði
Nýlega var hafist handa við að grisja og snyrta skóginn nyrst í Undirhlíðum. Svæði þetta var girt af árið 1961 og gróðursetning trjáplantna hófst skömmu síðar. Mest ber á sitkagreni/sitkabastarði og stafafuru í skóginum í Undirhlíðum. Villt birkikjarr er áberandi víða. Einnig er í Undirhlíðaskógi bergfura, blágreni, fjallaþinur, lerki, selja, reyniviður og fleiri tegundir…
Samningar um svokallaðar landnemaspildur sem byrjað var að úthluta á ári trésins 1980 renna út í mars á þessu ári. Gildum félögum í Skógræktarfélagi Hafnarfjarðar, stofnunum, félögum og fyrirtækjum sem sinnt hafa uppgræðslu og hirðingu í sínum spildum verður boðið endunýjun á viðkomandi landnema-samningi til ársins 2030. Þessa dagana er verið að vinna í því…
Undanfarna daga hafa starfsmenn félagsins unnið að grisjun skógarins í norðurhlíðum Selhöfða við Hvaleyrarvatn. Byrjað var að gróðursetja í Selhöfðann upp úr 1980. Mest var gróðursett af stafafuru sem þrifist hefur mjög vel. Er hún fyrir löngu farin að sá sér út. Einnig er nokkuð af sitkagreni og eitthvað af síberíulerki í hlíðinni. Á næstunni stendur svo til að…
Hin svokallaða jólafuglatalning fór fram helgina 27. – 28. desember síðastliðinn. Eins og mörg undanfarin ár töldu Hannes Þór Hafsteinsson og Steinar Björgvinsson svæði það er kallast "Hafnarfjörður austan Reykjanesbrautar". Innan þess er athafnasvæði Skógræktarfélagsins. Töldu þeir félagar á laugardeginum í björtu, stilltu en köldu veðri. Var hitinn til að mynda -14°C í Sléttuhlíð um…
Opið er í dag, Þorláksmessu, frá kl. 10.00 – 17.00. Eigum enn til furu-jólatré og furu og grenitré með hnaus. Eigum von á nýhöggnum blágrenitrjám í dag. Allar leiðisgreinar á kr. 2.000,-/stk. Erum við Kaldárselsveg í Hafnarfirði. Síminn er: 555-6455 eða 894-1268.
Jólatrjáasalan er opin í dag mánudaginn 22. des frá kl. 10.00 – 18.00. Furujólatré, furu- og grenijólatré með hnaus, leiðisgreinar, jólavendir, hurðarkransar og fleira. Síminn er: 555-6455 eða 894-1268.
Jólatrjáasala félagsins verður opin föstudaginn 19. desember frá kl. 10.00 – 18.00. Laugardaginn 20. og sunnudaginn 21. desember verður opið frá kl. 10.00 – 18.00 báða dagana. Bjóðum upp á íslensk furu- og grenijólatré (rauð- og blágreni). Einnig jólatré með rót (sitkagreni og stafafura). Leiðisgreinar, krossar, hurðarkransar, jólavendir, kertaskreytingar, eldiviður og fleira er einnig fáanlegt.…
Jólatrjáasala félagsins verður opin virka daga frá kl. 10.00 – 18.00 vikuna 15. – 19. des. Helgina 20. -21. des. verður opið frá kl. 10.00 – 18.00 laugar- og sunnudag. Höfum á boðstólum íslensk furu- og grenijólatré ásamt leiðisgreinum, hurðarkrönsum, jólavöndum, kertaskreytingum, eldivið og fleiru. Minnum einnig á gjafabréfin í Þöll. Síminn er 555-6455…