Handverkssýning
Viðarvinir verða með handverkssýningu á tálguðum, renndum og útskornum munum í Selinum, bækistöðvum félagsins við Kaldárselsveg, milli kl. 10.00 – 18.00.
Viðarvinir verða með handverkssýningu á tálguðum, renndum og útskornum munum í Selinum, bækistöðvum félagsins við Kaldárselsveg, milli kl. 10.00 – 18.00.
Viðarvinir verða með handverkssýningu á tálguðum, renndum og útskornum munum í bækistöðvum félagsins við Kaldárselsveg laugardaginn 18. maí milli kl. 10.00 – 18.00. Þann sama dag opnar Gróðrarstöðin Þöll sem er til húsa á sama stað. Nánari upplýsingar í síma: 555-6455.
Fulltrúafundur Skógræktarfélags Íslands var haldinn í hestamiðstöð Íshesta laugardaginn 6. apríl síðastliðin. Á fundinn mættu fulltrúar skógræktarfélaga hvaðanæva af landinu. Fundurinn hófst á því að fulltrúar félaganna sögðu frá starfsemi sinna félaga. Að loknu hádegishléi voru flutt nokkur fræðsluerindi m.a. um landgræðsluskógaverkefnið og eldvarnir í skógi. Dagskráin endaði svo með gönguferð um Höfðaskóg undir leiðsögn Jónatans Garðarssonar formanns…
Hólmfríður Finnbogadóttir fráfarandi framkvæmdastjóri félagsins var kjörin heiðursfélagi á aðalfundi félagsins 21. mars síðastliðin. Hér nælir Jónatan Garðarsson formaður félagsins gylltu barmmerki félagsins í jakka Hólmfríðar. Ljósmynd: Júlíanna Svansdóttir.
Hólmfríður Finnbogadóttir sem starfað hefur hjá Skógræktarfélagi Hafnarfjarðar í 33 ár, þar af sem framkvæmdastjóri í 15 ár, lét formlega af störfum á aðalfundi félagsins sem haldinn var 21. mars 2013 á alþjóðadegi skóga. Hólmfríður hefur haldið um stjórnartaumana lengur í 24 ár því hún varð formaður félagsins árið 1989. Hún var fyrsta konan sem…
Aðalfundur Skógræktarfélags Hafnarfjarðar, 21. mars 2013. Fundarstjóri – Góðir félagar og gestir! Samkvæmt venju vil ég byrja á að minnast látinna félaga. Frá síðasta aðalfundi félagsins sem haldinn var í mars á síðasta ári, hafa 9 félagsmenn fallið frá. Þessir ágætu félagar okkar hétu: Egill Strange, Haraldur Sigurðsson, Reynir Jóhannsson, Tryggvi Sigurgeirsson Á síðasta ári…
Fundarstjóri, kæru félagar. Í dag er alþjóðlegur dagur skóga. Til hamingju með það. Það fer einstaklega vel á því að halda aðalfund félagsins í dag. Veturinn var ekki eins mildur og margir undanfarnir vetur og talsverður snjór var í byrjun árs. Eftir nokkuð hlýjan apríl fór að kólna í maí með talsverðu frosti sem stóð…
Gróðrarstöðin opnar aftur í maí 2013. Ef þið hafði spurningar eða vantar plöntur fyrir þann tíma hafið þá samband í síma: 555-6455 eða 894-1268.
Aðalfundur Skógrækarfélags Hafnarfjarðar verður haldinn í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar Strandgötu 34, fimmtudagskvöldið 21. mars næstkomandi kl. 20.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. Hlé 2. Vilhjálmur Lúðvíksson formaður Garðyrkjufélags Íslands flytur erindi í máli og myndum sem hann nefnir „Rósir í skjóli skóga – íslenskar og erlendar“. Félagið býðir upp á kaffiveitingar í hléi. Allir velkomnir. Stjórnin…
Hin árlega fuglatalning í skógum félagsins og hverfum bæjarins austan og sunnan Reykjanesbrautar, en það er eitt og sama talningarsvæðið, fór fram laugardaginn 12. janúar. Í ár sáust samtals 20 fuglategundir sem er í mesta lagi fyrir þetta svæði. Hannes Þór Hafsteinsson og Steinar Björgvinsson töldu eins og undanfarin ár í blíðskaparveðri.. Eftirfarandi fuglar sáust:…