Dagskrá 2014
· Fimmtudagur 27. mars: Aðalfundur félagsins verður haldinn í Hafnarborg, Strandgötu 34 kl. 20.00.
· Laugardagur 26. apríl: Skyggnst í skóginn. Í tilefni Bjartra daga verður gengið kl. 14:00 um Höfðaskóg og yfir í skóginn í Selhöfða. Þar hefur mikið starf hefur verið unnið í grisjun að undaförnu. Skógurinn í Selhöfða var gróðursettur snemma á níunda áratug síðustu aldar.
· Laugardagur 31. maí: Hin árlega fuglaskoðun í Höfðaskógi og við Hvaleyrarvatn. Lagt af stað frá Selinu, bækistöðvum félagsins og Þallar við Kaldárselsveg kl.10.00.
· Laugardagur 7. júní: Viðarvinir verða með handverkssýningu á tálguðum, renndum og útskornum munum í Selinu, bækistöðvum félagsins við Kaldárselsveg, milli kl. 10.00 – 18.00 (Sigurjón Ingvarsson).
· Fimmtudagur 17. júlí: Ganga um skóginn í Undirhlíðum. Lagt af stað frá Kaldárseli og gengið inn í Skólalund.
· Sunnudagur 27. júlí: Skógar- og útivistardagur fjölskyldunnar. Árleg hátíð í Höfðaskógi og nágrenni sem haldin er í samstarfi við ýmsa aðila í Hafnarfirði. Dagskráin stendur á milli kl. 14.00 – 17.00. Nánar auglýst síðar.
· Laugardagur 13. september: Svokallaður „sjálfboðaliðadagur“. Gróðursett verður í Vatnshlíð í minngarlund um hjónin Hjálmar R. Bárðarson og Else S.Bárðarson. Mæting í Vatnshlíð norðan Hvaleyrarvatns kl. 10.00.
· Laugardagur 18. október: Gengið um Setbergshverfið. Mæting við Setbergsskóla. Gengið verður um hverfið og hugað að garðagróðri. Hvert er hæðsta tré hverfisins?
· Jólatrjáasala: Jólatrtjáa- og skreytingasla félagsins verður í Selinu við Kaldárselsveg í desember eins og endranær.