Jólatrjáa- og skreytingasala Skógræktarfélags Hafnarfjarðar
Jólatrjáa- og skreytingasala Skógræktarfélags Hafnarfjarðar verður eins og endranær í Selinu, bækistöðvum félagsins og Þallar, við Kaldárselsveg í Hafnarfirði. Í boði eru íslensk jólatré, greinar, könglar, leiðisskreytingar, borðskreytingar, jólavendir, hurðakransar o.fl.
Félagið býður viðskiptavinum sínum upp á hressingu.
Opið laugar- og sunnudaga helgarnar 7.-8. ., 14.-15. og 21.-22. desember. Opnunartími er kl. 10:00-18:00. Einnig er hægt að koma í heimsókn í miðri viku.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma félagsins: 555-6455 eða 894-1268.