Hin árlega fuglaskoðunarferð Skógræktarfélags Hafnarfjarðar verður laugardaginn kemur 1. júní í tengslum við bæjarhátíðina “Bjarta daga”. Lagt verður af stað frá bækistöðvum félagsins og Þallar kl. 10.00. Gangan tekur um tvær klukkustundir. Leiðsögumenn verða vanir fuglaskoðarar. Nánari upplýsingar í síma Skógræktarfélags Hafnarfjarðar: 555-6455.