Svartþrestir í skóginum
Á síðastliðnum árum hafa svartþrestir orðið all algengir og áberandi garð- og skógarfuglar á höfuðborgarsvæðinu. Yfir 10 svartþrestir koma í æti á hlaðinu við bækistöðvar félagsins í Höfðaskógi þessa dagana.
Á síðastliðnum árum hafa svartþrestir orðið all algengir og áberandi garð- og skógarfuglar á höfuðborgarsvæðinu. Yfir 10 svartþrestir koma í æti á hlaðinu við bækistöðvar félagsins í Höfðaskógi þessa dagana.
Aðalfundur Skógrækarfélags Hafnarfjarðar verður haldinn í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar Strandgötu 34, miðvikudagskvöldið 7. mars næstkomandi kl. 20.00. Að loknum venjulegum aðalfundarstörfum mun Ólafur S. Njálsson garðyrkjukandidat, eigandi garðplöntustöðvarinnar Nátthaga í Ölfusi, flytja erindi sem hann nefnir „aukin fjölbreytni í útivistarskóga“. Félagið býðir upp á kaffiveitingar í hléi. Allir velkomnir. Stjórnin
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna lýsir árið 2011 „Alþjóðlegt ár skóga” sem lið í að fylgja eftir áherslum og yfirlýsingum, allt frá ráðstefnunni um umhverfi og þróun í Ríó árið 1992. Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, setti árið formlega hér á landi þann 12. janúar og fékk við það tækifæri afhentan fána með íslenskri útfærslu á…
Gróðrarstöðin Þöll er rekin sem sjálfstæð eining í eigu Skógræktarfélags Hafnarfjarðar og hefur eigin stjórn sem starfar óháð félaginu. Steinar Björgvinsson ræktunarstjóri sér um daglegan rekstur en gróðrarstöðin er opin frá vori og fram á haustmánuði og býður upp á allar helstu trjátegundir s.s. skrautrunna, garðtré, berjarunna, rósir, skógarplöntur, limgerðisplöntur, klifurrunna og margt fleira. Nær…