Fundarstjóri, kæru félagar.
Við byrjuðum árið á grisjunarvinnu í norðanverðum Selhöfða og grisjuðum þar á annan hektara af furuskógi og einnig grisjuðum við asparteig suður af Seldal. Í því verkefni fengum við sjálfboðaliða að nafni Jökull í lið með okkur.
Veturinn í fyrra var almennt þægilegur til útivinnu. Mesti snjórinn kom í janúar og í lok október en annars var veður lítið að há vinnnu við grisjun eða jólatrjáahögg. Vorið var gott og maí alveg einstaklega hlýr. Svo kom nokkurra daga norðanátt með kulda í byrjun júní. Sumarið var með allar besta móti. Við sluppum alveg við alla gróðurelda í fyrra.
Hópur frá Vinnuskóla Hafnarfjarðar starfaði hjá félaginu í fyrrasumar. Voru þetta ungmenni á fimmtánda og sextánda aldursári. Flokkstjóri var Þórir Pétur og aðstoðarflokkstjóri var Luiza.
Ariel frá Frakklandi starfaði hjá okkur í júlí og Nikki frá Hollandi í júlí og ágúst. Ingvar Åberge starfaði hjá okkur frá vori og fram á haust. Feðgarnir Jón og Ívar störfuðu einnig hjá okkur í nokkrar viku í sumar en þeir eru búsettir í Noregi.
Magnús Jónsson Núpan starfaði hjá okkur í ágúst og september.
Björn Ísak starfaði svo hjá félaginu í nóvember og desember.
Í gróðrarstöðinni var svo Hannes Þór Hafsteinsson frá vori og fram á haust og Bryndís Björgvinsdóttir um helgar yfir háannatímann.
14. nóvember lést Þorkell Þorkelsson vinur okkar og heiðursfélagi. Þorkell hefur í gegnum tíðina unnið alls kyns sjálfboðaliðastörf fyrir félagið. Þorkell var lengi skoðunarmaður reikninga hjá félaginu. 14. desember lést svo Svanur Pálsson fyrrverandi stjórnarmaður og heiðursfélagi. Hann vann einnig að alls kyns sjálboðaliðastörfum fyrir félagið í áratugi. Við vottum fjölskyldum þeirra okkar innilegstu samúðarkveðjur. Þeirra Svans og Þorkels verður sárt saknað.
Helstu viðburðir á vegum félagsins í fyrra voru eftirfarandi:
Aðalfundur félagsins var 3. apríl hér í Hafnarborg. Að loknum venjulegum aðalfundarstörfum flutti Þorsteinn Tómasson plöntuerfðafræðingur erindi sem hann nefndi „rauða genið og kynbætur birkis“.
Jarðarblót fór fram við bækistöðvar félagsins 22. apríl í samvinnu við Ásatrúarfélagið.
Fjölskyldudagurinn „Líf í lundi“ fór fram laugardaginn 21. júní. Boðið var upp á veitingur og trúður kíkti í heimsókn. Pálmar Örn Guðmundsson kom og spilaði og söng. Færri gestir komu í fyrra samanborið við undanfarin ár enda talsverð rigning þennan dag.
Boðið var upp á skógargöngu 2. júlí í samstarfi við heilsubæinn Hafnarfjörð. Var ganga þessi hugsuð fyrir yngstu kynslóðina með áherslu á plöntugreiningu. Talsvert af fjölskyldufólki mætti.
22. júlí var boðið upp á aðra göngu um skóginn. Í þetta skipti í samstarfi við Garðyrkjufélag Íslands sem fagnaði 140 ára afmæli í fyrra. Mæting var góð.
Sjálfboðaliðadagur félagsins var laugardaginn 20. september. Gróðursett var upp á hæðinni á móts við Hamranesflugvöll. Um 30 manns mættu á öllum aldri og gróðursettu 500 trjáplöntur úr pottum 2-3 ára gamlar. Boðið var upp á hressingu í bækistöðvum félagsins að gróðursetningu lokinni.
Jólatrjáa- og skreytingasala félagsins opnaði snemma í fyrra. Opið var helgarnar 22.-23. og 29.-30 nóvember og svo alla daga í desember fram að jólum.
Þess má svo geta að ýmsir aðrir viðburðir og samkomur fara gjarnan fram á svæðinu. Hvítasunnuhlaup skokkhóps Hauka fór að venju fram annan í Hvítasunnu. Hlaupið fer að stórum hluta fram á skógarstígum og götum í upplandinu.
Ýmsir aðilar heimsóttu félagið á síðastliðnu ári og ætla ég að nefna þá helstu:
Seint í febrúar heimsóttu starfsmenn Skógræktarfélags Reykjavíkur okkur.
Í byrjun mars kom stór hópur nemenda við Garðyrkjuskólann í heimsókn ásamt kennara þeirra Steinunni Garðarsdóttur.
Í byrjun júní bauð félagið bæjarstjóra, bæjarfulltrúum og starfsfólki framkvæmda- og skipulagsdeildar í heimsókn. Gengið var um bækistöðvar félagsins og um Höfðaskóg. Í lokin var boðið upp á léttar veitingar í bækistöðvum félagsins.
Stór hópur gesta frá norrænu rósaklúbbunum heimsótti félagið sunnudaginn 10. ágúst í blíðskaparveðri í tengslum við „Norrænu Rósahelgina“ sem haldin var hérlendis í fyrra. Farið var með hópinn um rósasafnið í hlíðum Húshöfða. Hópurinn snæddi hádegisverð við bækistöðvar félagsins og félagið bauð upp á kaffi og með því.
Nemendur við Landbúnaðarháskóla Íslands heimsóttu félagið í byrjun september ásamt kennara sínum Samson B. Harðarsyni.
Nemendur við hönnunardeild Listaháskóla Íslands heimsóttu okkur um miðjan september ásamt kennara sínum Bryndísi til að fræðast um skógrækt, timbur og fleira.
Á aðventunni komu svo nemendur og kennarar leikskólanna Stekkjarás, Víðivalla og Hlíðarbergs og sóttu sér jólatré í skóginn. Sveinki tók auðvitað á móti börnunum og hjálpaði til við að finna rétta jólatréið og krakkarnir fengu svo heitt súkkulaði og piparkökur í bækistöðvum félagsins og tóku lagið í þakklætisskyni.
Hluti starfsmanna og stjórnar félagsins sóttu fund hér í Hafnarborg í mars um endurskoðun á aðalskipulagi bæjarins.
Starfsmenn félagsins ásamt stjórn tóku þátt í fulltrúafundi skógræktarfélaganna á Snæfoksstöðum, Grímsnesi í byrjun apríl. Meginþema fundarsins var stefnumótun Skógræktarfélags Íslands og aðildarfélaganna.
Í lok ágúst sótti hluti stjórnar og starfsmanna aðalfund Skógræktarfélags Íslands sem haldinn var að Laugalandi í Borgarfirði. Meginþema fundarins var stefnumótun og skipulagsmál skógræktar.
Ýmsir aðilar komu til að gróðursetja og sinna landnemaspildum sínum á árinu.
Nokkrir nemendur og kennarar komu um vorið og gróðursettu í landnemaspildu Flensborgar. Hópur frá Flensborg kom svo aftur um haustið til að gróðursetja.
Stór hópur starfsmanna lyfjafyrirtækisins Teva kom og gróðursetti í landnemaspildu fyrirækisins það er að segja í spildu Actavis í Klifsholti snemma í maí.
Nemendur og kennarar leikskólans Hvamms heimsóttu okkur um vorið og gróðursett var tré í Höfðaskógi í tilefni heimsóknarinnar.
Félagar í Rótarýklúbbnum Straumi komu og gróðursettu í landnemaspildu klúbbsins nyrst í Langholti í maí.
Nemendur og kennarar við Nú – framsýn menntun komu um vorið og gróðursettu í landnemaspildu skólans við gamla Kaldárselsveginn.
7. bekkingar í Víðistaðaskóla komu og gróðursettu fyrir styrk úr Yrkjusjóði í landnemaspildu skólans norður af Kjóadal í byrjun júní.
Útskriftarnemar í leikskólanum Norðurbergi komu og gróðursettu í lundinn sinn í byrjun sumars eins og venjan er.
Áslandsskóli hélt uppteknum hætti og gróðursettu nemendur í grenndarskóg við skólann í júní.
Starfsfólk verkfræðistofunnar Eflu og fjölskyldur þeirra hittust síðdegis dag einn í júní í Skátlundi og gróðursettu ýmsar trjátegundir undir handleiðslu starfsmanns skógræktarfélagsins í svæði skammt frá Skátalundi.
5. bekkingar í Skarðshlíðarskóla ásamt kennurum komu og gróðursettu upp á hæðinni skammt austur af Hamranesi um haustið.
Félagar í Lionsklúbbnum Ásbirni gróðursettu nokkur tré í spildu sína í Klifsholtum um haustið.
Starfsfólk ferðaþjónustufyrirtækisins Travel Connect og fjölskyldur þeirra komu svo á sunnudegi í lok september og gróðursettu í hlíðarnar á móts við Hamranesflugvöll.
Félaginu hlotnuðust nokkrir styrkir á árinu. HS Orka styrkti félagið um kr. 250.000,- til gróðursetningar trjáa á jarðvegstippnum við Hamranes. Land og skógur styrkti félagið um 3.000 skógarplöntur sem gróðursettar voru á sama stað. Við fengum landgræðsluskógaplöntur í gegnum Skógræktarfélag Íslands og gróðursettum í Seldal og nágrenni. Svo fengum við greiddan styrk frá Landgræðslusjóði upp á kr. 1.000.000,- í fyrra upp í kostnað við grisjun skógarins í Selhöfða. Einnig styrkti Almenningsíþróttadeild Hauka félagið en Hvítasunnuhlaupið fer að stórum hluta fram á skógarstígum sem félagið hefur lagt.
Félagið útvegaði Kvenfélagi Fríkirkjunnar í Hafnarfirði greinar á aðventunni til leiðisgreinagerðar. Einnig sóttum við blóm í Grænan Markað fyrir jólin og fórum með til Karmelsystra ásamt greinum og nokkrum jólatrjám frá félaginu. Einnig útvegaði félagið viðarbúta til smíðakennslu og græðlingaefni af víði til körfugerðar svo eitthvað sé nefnt.
Leikskólinn Norðurberg hélt uppteknum hætti og kom mánaðarlega yfir veturinn til útikennslu og nýtti húsakynni félagsins til matargerðar og til að komast á salerni.
Þess má geta að húsgámur sem hjónin Björk og Sölvi Steinarr gáfu félaginu á sínum tíma var alveg tekinn í gegn að innan og gengið frá þaki í byrjun árs. Var Björn Ísak ráðinn í verkið.
Pálmar Örn Guðmundsson gerði tvo myndbönd í fyrra um skóginn í Gráhelluhrauni sem eru aðgengileg á Youtube undir „Skógurinn – Forests in Iceland“.
Félagið fagnar áttatíu ára afmæli í ár. Það eru breyttir tímar. Nú er félagið ekki lengur í samstarfi við Landsvirkjun en Landsvirkjun útvegaði félaginu sumarvinnuhóp í rúm tuttugu ár. Þörf á grisjun eykst með hverju árinu. Einnig er mikilvægt að leggja fleiri stíga og götur til að bæta aðgengi og til að draga úr gróðureldahættu. Skógar félagsins verða bara vinsælli og vinsælli. Samhliða því þarf oftar að hreinsa, losa ruslaílát og þess háttar. Einnig þarf meira eftirlit ekki hvað síst þegar gróðureldahættan er hvað mest á vorin. Nú varð eldur hjá okkur í byrjun febrúar í ár! Það er alveg nýtt að það kveikni í hjá okkur á þessum árstíma. Svo þarf að fara að huga nýrri bækistöð fyrir félagið eða taka þá sem fyrir er rækilega í gegn.
Boðið verður upp á viðburði á árinu eins og venjulega en einnig sérstaklega í tilefni tímamótanna. 22. apríl kl. 18.00 verður jarðarblót við Þöll. Viðburðurinn er haldinn í samvinnu við Ásatrúarfélagið. 20. júní verður fjölskyldudagurinn „Líf í lundi“ haldinn hátíðlegur. Í júlí eða ágúst verður flutt nýtt tónverk í skóginum í samstarfi við flautuhópinn Viibru og raftónlistarfólk. Sjálfboðaliðadagur félagsins verður 19. september. Svo er afmælisdagur félagsins 25. október og líklegt að boðið verði til kaffisamsætis fyrir félagsmenn. Allir viðburðir eru auglýstir á heimasíðu félagsins skoghf.is og facebook.
Ég vil þakka stjórn félagsins, endurskoðanda, skoðunarmönnum reikninga og samstarfsfólki, þeim Árna og Jökli fyrir þeirra framlag og góða samvinnu. Vinnuskóli Hafnarfjarðar og Fjarðarkaup fá sérstakar þakkir fyrir allan þeirra stuðning við félagið. Sérstakar þakkar til allra sjálfboðaliða sem lagt hafa félaginu lið á einn eða annan hátt. Ég vil í því sambandi nefna: Magnús Helgason, Vigfús Vigfússon, Línu, Önnu, May Ann, Kalla, Önnu Stínu, Vilborgu Sverrisdóttur, Stefán, Gunna og Hadda og stjórnarmenn sem tóku þátt í jólatrjáasölunni og fleiru. Einnig þakkir til Pálmars Guðmundssonar og Ellenar fyrir myndböndin og tónlist á Líf í lundi og á aðventunni. Þakkir til David fyrir veitingar og til Gyðu fyrir að hjálpa til við undirbúning Líf í lundi. Einnig sérstakar þakkir til Daníels fyrir alla byggingarvinnuna. Einnig vil ég þakka Hafnarfjarðarbæ og starfsmönnum bæjarins fyrir samstarfið ásamt Skógræktarfélagi Íslands og starfsmönnum þess.
