Fjölskylduhátíð Skógræktarfélags Hafnarfjarðar fer fram laugardaginn 27. júní kl. 14.00 – 17.00 við Þöll, Kaldárselsvegi. Pálmar Örn Guðmundsson trúbador kemur og tekur lagið. Ellen og Pálmar verða með salsadanskennslu. Blómaverkstæði barnanna verður á sínum stað. Boðið verður upp á grillaðar pulsur. Larpið kíkir í heimsókn og blöðrulistamaður mætir á svæðið.
Hliðið inn á bílastæðið við Þöll verður lokað af öryggisástæðum. Bendum á bílastæði í Værð, við Höfða (skógarvarðarbústaðinn), bílastæði á Beitarhúsahálsi (norðan við Þöll), við Vatnshlíðarveg. Mælum með að koma gangandi eða hjólandi eftir hinum frábæra Græna stíg.
Sjáumst: Stjórn og starfsfólk.



