Fuglaskoðun
Fuglaskoðun – laugardaginn 28. maí kl. 10.00. Lagt af stað frá Þöll við Kaldárselsveg. Gengið um Höfðaskóg. Fuglaskoðunin tekur um tvær klukkustundir. Leiðsögumenn: Hannes Þór Hafsteinsson og Steinar Björgvinsson.
Fuglaskoðun – laugardaginn 28. maí kl. 10.00. Lagt af stað frá Þöll við Kaldárselsveg. Gengið um Höfðaskóg. Fuglaskoðunin tekur um tvær klukkustundir. Leiðsögumenn: Hannes Þór Hafsteinsson og Steinar Björgvinsson.
Vorganga – laugardaginn 23. apríl kl. 11.00. Gengið verður frá Kaldárseli meðfram Undirhlíðum og inn í Skólalund og til baka. Talsvert hefur verið unnið að grisjun og snyrtingu skógarins í Undirhlíðum í fyrra og á þessu ári. Gangan tekur um tvær klukkustundir. Ganga þessi er hluti af dagskrá bæjarhátíðarinnar „Bjartra daga“ sem standa frá 20.…
Aðalfundur og ráðstefna – laugardaginn 9. apríl kl. 14.00 – 17.00 í Apótekinu, Hafnarborg, Strandgötu 34. Að loknun venjulegum aðalfundarstörfum sem standa milli kl. 14.00 – 15.00 verður ráðstefna um „Notagildi upplandsins og framtíð skógræktar í bæjarlandinu“.
Laugardaginn 16. janúar töldu Hannes Þór Hafsteinsson, Einar Þorleifsson og Steinar Björgvinsson fugla á svæði því sem nefnt er "Hafnarfjörður austan Reykjanesbrautar". Talningar sem þessi hafa farið fram í áratugi á landinu og heldur Náttúrufræðistofnun Íslands utan um gögnin sem fást og skipuleggur vetrarfuglatalningu ár hvert. Umrætt svæði hefur verið talið í um 15…
Skógræktarfélag Hafnarfjarðar og Gróðrarstöðin Þöll óska félögum, viðskiptavinum og velunnurum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
Opið í dag, aðfangadag, frá kl. 11.00 – 13.00. Eigum enn til furu- og blágrenijólatré í minni kantinum. Öll tré á kr. 4.000,-/stk. Furugreinar fylgja með í kaupbæti. Síminn er: 555-6455 eða 894-1268 (Steinar).
Opið í dag, 23. desember Þorláksmessu, frá kl. 10.00 – 16.00. Öll jólatré á kr. 4.000,-. Eigum enn til furu- og blágreni-jólatré í minni kantinum. Furugreinar í kaupbæti með hverju tré. Eigum einnig til leiðisgreinar og krossa. Heitt á könnunni. Síminn er: 555-6455. Netfang: skoghf@simnet.is.
Jólatrjáasalan er opin í dag þriðjudaginn 22. desember frá kl. 10.00 – 18.00. Eigum enn til furu- og grenijólatré aðallega í minni kantinum. Einnig hurðakransa, leiðisgreinar og fleira. Síminn er: 555-6455 og netfang: skoghf@simnet.is.
Eigum enn til jólatré. Vorum að fá ný tré í morgun. Hurðakransar, leiðisgreinar, jólavendir, eldiviður, garðyrkjubækur, gjafabréf í Þöll o.fl. Opið til kl. 18.00 í dag mánudaginn 21. des. Síminn er: 555-6455. Netfang: skoghf@simnet.is
Jólatrjáasala félagsins er opin í dag, sunnudaginn 20. des., frá kl. 10.00 – 18.00. Íslensk furu- og grenijólatré. Einnig hurðakransar, leiðisgreinar, kertaskreytingar, hýasintuskreytingar, eldiviður og fleira. Furugreina-búnt fylgir hverju seldu jólatré. Allir fá heitt súkkulaði. Síminn er: 555-6455. Netfang: skoghf@simnet.is. Að gefnu tilefni er varað við hálku á Kaldárselsveginum. Farið varlega.