Jólatrjáa- og skreytingasala
· Jólatrjáa- og skreytingasala félagsins verður í Selinu við Kaldárselsveg í desember eins og endranær.
· Jólatrjáa- og skreytingasala félagsins verður í Selinu við Kaldárselsveg í desember eins og endranær.
Í dag, laugardaginn 30. nóvember, heimsótti hópur þjóðverja frá Cuxhaven félagið heim ásamt stjórn Cuxhaven-Hafnarfjörður vinabæjarfélagsins. Heimsókn þjóðverjanna er í tengslum við afhendingu og tendrum á jólatrénu frá Cuxhaven sem stendur við Flensborgarhöfn. Myndin er tekin þegar minningarsteinn um Jónas heitinn rafveitustjóra var afhjúpaður í fyrra af Dórótheu ekkju Jónasar og frú Fischer bæjarstjóra í Cuxhaven. Minningarsteinninn stendur í Cuxhaven-trjálundinum við…
Jólatrjáa- og skreytingasala Skógræktarfélags Hafnarfjarðar Jólatrjáa- og skreytingasala Skógræktarfélags Hafnarfjarðar verður eins og endranær í Selinu, bækistöðvum félagsins og Þallar, við Kaldárselsveg í Hafnarfirði. Í boði eru íslensk jólatré, greinar, könglar, leiðisskreytingar, borðskreytingar, jólavendir, hurðakransar o.fl. Félagið býður viðskiptavinum sínum upp á hressingu. Opið laugar- og sunnudaga helgarnar 7.-8. ., 14.-15. og 21.-22. desember.…
Nýlega var lokið við að reisa útikennslustofu nyrst í skóginum í Gráhelluhrauni rétt við Lækjarbotna í gömlum grenilundi. Pokasjóður styrkti gerð útikennslustofunnar. Einar Óskarsson skógarvörður í Haukadal var félaginu innan handar við gerð útikennslustofunnar. Önnur útikennslustofa er í Höfðaskógi við Hvaleyrarvatn sem gerð var fyrir styrk frá hjónunum Herði Zóphaníassyni og Ásthildi Ólafsdóttur. Á myndinni tilla…
Laugardagsmorguninn 5. október síðastliðinn mættu um 15 manns í trjáskoðunar- og trjámælingar-gönguferð félagsins um Suðurbæinn. Eftirfarandi garðar voru heimsóttir og hávaxin og/eða sjaldgæf tré mæld. Félagið þakkar þeim garðeigendum sem opnuðu garða sína fyrir gönguhópnum kærlega fyrir. Ljósmynd: Jónatan Garðarsson. Niðurstöðurnar fara hér á eftir. • Hringbraut 68: Alaskaösp gróðursett af Jóni í Skuld. Hæð: 17,25 m.…
Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar og Skógræktarfélag Hafnarfjarðar bjóða til skógargöngu nk. þriðjudagskvöld, 8. október, kl. 19.30. Farið frá bækistöðvum skógræktarfélagsins og Þallar við Kaldárselsveg. Boðið upp á súkkulaði og meðlæti í bækistöðvum skógrækarfélagsins í lokin. Göngufólk er beðið um að taka með sér ljósfæri þar sem skuggsýnt er orðið.
· Gengið um Suðurbæinn. Mæting við Suðurbæjarlaug kl. 10.00. Gengið verður um bæinn og hugað að trjágróðri í görðum bæjarbúa.
Laugardaginn 5. október ætlum við að ganga um bæinn og huga að trjágróðri í görðum bæjarbúa. Hugmyndin er að mæla stærstu tréin sem á vegi okkar verða. Einnig skoðum við hvaða tegundir garðagróðurs leynast bakvið garðveggina. Í fyrra mældum við grenitré við Brekkugötu 12 sem reyndist vera tæpir 21 m á hæð. Er það hæðsta tré bæjarins svo…
Í vikunni sem leið heimsóttu tíu nemar Landgræðsluskóla Sameinuðu þjóðanna félagið heim. Um er að ræða sex mánaða nám í landgræðslufræðum sem Landbúnaðarháskóli Íslands heldur utan um. Nemarnir að þessu sinni komu frá: Níger, Namibíu, Eþíópíu, Uganda, Ghana, Mongólíu og Kirgistan. Þetta er í þriðja sinn sem nemar við Landgræðsluskóla SÞ heimsækja skógræktarfélagið. Skógræktarfélagið óskar þessu atorkusama fólki góðs gengis…
Um 30 sjálfboðaliðar mættu síðastliðinn laugardag og gróðursettu í Vatnshlíðarlund til minningar um Hjálmar R. Bárðarson og Else Bárðarson. Gróðursettar voru um 1.200 þriggja ára gamlar trjáplöntur af ýmsum tegundum. Gaman var að sjá að ungir jafnt sem aldnir mættu og var lokið við að gróðursetja á tveimur tímum þrátt fyrir að bera þyrfti plönturnar upp brattar brekkur og…