Sumarstörf
Félagið vill ráða 16 – 20 ára sumarstarfsmenn í júní og júlí. Um er að ræða störf við gróðursetningu, hreinsun á upplandinu, stígagerð, viðhald skógarstíga og fleira í þeim dúr. Sendið umsóknir á netfangið skoghf@simnet.is
Félagið vill ráða 16 – 20 ára sumarstarfsmenn í júní og júlí. Um er að ræða störf við gróðursetningu, hreinsun á upplandinu, stígagerð, viðhald skógarstíga og fleira í þeim dúr. Sendið umsóknir á netfangið skoghf@simnet.is
Aðalfundur félagsins verður haldinn 23. mars næstkomandi í Hafnarborg kl. 20.00. Að loknum aðalfundarstörfum og kaffihlé flytur Brynja Hrafnkelsdóttir skordýrafræðingar hjá Skógræktinni erindi sem hún nefnir „Helstu skaðvaldar á trjágróðri og varnir gegn þeim“.
Nú er dagskrá félagsins komin inn hér á heimasíðunni undir flipanum „Dagskrá 2023“. Hún er birt með fyrirvara um breytingar. Ekki er ósennilegt að einhverjir fleiri skipulagðir viðburðir bætist við. Við munum segja betur frá hverjum viðburði frá hér á heimasíðunni og facebook-síðu félagsins þegar nær dregur. Aðalfundur félagsins verður haldinn fimmtudagskvöldið 23. mars kl.…
Búið er að ryðja helstu gönguleiðir í upplandi bæjarins. Um er að ræða göngustíginn í gegnum Gráhelluhraun, Græna stíginn sem liggur alla leið frá Brekkuási og að Gamla Kaldárselsvegi og svo göngustíginn í kringum Hvaleyrarvatn.
Óskum félögum og velunnurum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Nú eru félagar í Skógræktarfélagi Hafnarfjarðar komnir yfir þúsund. Með því að gerast félagi í Skógræktarfélagi Hfj styður þú við skógrækt og uppgræðslu í upplandi Hafnarfjarðar. Auk þess að styðja við uppbyggingu á betri útivistarsvæðum í skóglendum félagsins en félagið sér um skógrækt,…
Allar helgar í desember fram að jólum bjóðum við upp á heitt súkkulaði í kaupbæti fyrir alla okkar viðskiptavini. Opið alla daga í desember fram að jólum frá kl. 10.00 til 18.00. Sendið fyrirspurnir á netfangið skoghf.is. Sími: 555-6455.
Jólatrjáa- og skreytingasala félagsins er opin alla daga frá kl. 10.00 til 18.00. Íslensk jólatré, tröpputré, eldiviður, jólavendir, hurðarkransar, leiðisgreinar og fleira. Sendið fyrirspurnir á netfangið skoghf@simnet.is. Síminn er: 555-6455. Við erum í Þöll við Kaldárselsveg í Hafnarfirði.
Jólatrjáa- og skreytingasala félagsins hefst formlega laugardaginn 3. desember 2022. Hægt er að nálgast jólatré, greinar, eldivið og fleira fyrir þann tíma. Sendið pantanir og fyrirspurnir á netfangið skoghf@simnet.is. Tré fyrir verslanir á Strandgötu og Lækjargötu verða keyrð út í vikunni. Ef þið hafið ekki pantað nú þegar gerið það endilega sem fyrst. Við eigum…
Um sextíu manns mættu í ljósagöngu Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins og Skógræktarfélags Hfj í gærkvöldi. Gangan var í anda hrekkjavöku en um 15 manna undirbúningshópur hafði hist viku fyrir gönguna og lagt á ráðin. Hópur þessi klæddi sig upp og faldi sig í skóginum og skutu göngufólki skelk í bringu. Að göngu lokinni bauð Krabbameinsfélagið upp á…
Ljósaganga Skógræktarfélags Hafnarfjarðar og Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins verður fimmtudagskvöldið 27. október næstkomandi kl. 19.00. Við hittumst í Þöll við Kaldárselsveg og göngum þaðan um Höfðaskóg. Nánar auglýst síðar.