Vorganga – laugardaginn 23. apríl kl. 11.00.
Gengið verður frá Kaldárseli meðfram Undirhlíðum og inn í Skólalund og til baka.
Talsvert hefur verið unnið að grisjun og snyrtingu skógarins í Undirhlíðum í fyrra og á þessu ári.
Gangan tekur um tvær klukkustundir. Ganga þessi er hluti af dagskrá bæjarhátíðarinnar „Bjartra daga“ sem standa frá 20. – 24. apríl.
Leiðsögumaður: Jónatan Garðarsson.