Gróðrarstöðin Þöll er rekin sem sjálfstæð eining í eigu Skógræktarfélags Hafnarfjarðar og hefur eigin stjórn sem starfar óháð félaginu. Steinar Björgvinsson ræktunarstjóri sér um daglegan rekstur en gróðrarstöðin er opin frá vori og fram á haustmánuði og býður upp á allar helstu trjátegundir s.s. skrautrunna, garðtré, berjarunna, rósir, skógarplöntur, limgerðisplöntur, klifurrunna og margt fleira. Nær eingöngu er um eigin framleiðslu að ræða og hefur gróðurinn verið ræktaður í ræktunarstöð Þallar og þar af leiðandi aðlagaður íslenskum aðstæðum.
Þó svo að stöðin sé fyrst og fremst opin yfir sumartímann er hægt að hafa samband við ræktunarstjórann á öðrum tímum ársins til að fá ráðleggingar um plöntuval og sitthvað fleira.
Þöll er við Kaldárselsveg í Hafnarfirði nærri Íshestum og skammt frá Hvaleyrarvatni. Síminn er 555-6455.
Staðsetning
[widgetkit id=35]