Aðalfundur Skógræktarfélags Hafnarfjarðar verður haldinn þriðjudaginn 14. apríl næstkomandi kl. 20.00 í Apótekinu, Hafnarborg, Strandgötu 34, Hafnarfirði. Gengið inn frá Strandgötu.
Kl. 20.00 – 20.50
- Venjuleg aðalfundarstörf.
Kaffihlé
Kl. 21.10 – 21.45
- Guðríður Helgadóttir, Gurrý garðyrkjufræðingur með meiru flytur erindi um fjölæringa sem henta í skógajaðra og skógarbotninn.
Sjá nánar á heimasíðu félagsins: skoghf.is og fésbókarsíðu.
Stjórnin

