Hinn árlegi sjálfboðaliðadagur félagsins verður næstkomandi laugardag, 16. september 2023, kl. 11.00. Við ætlum að gróðursetja í hlíðarnar á móts við módelflugvöllinn við Hvaleyrarvatnsveg skammt sunnan við Hamranes. Við áætlum að gróðursetningarstarfið taki um tvær klukkustundir. Að gróðursetningu lokinni um kl. 13.00 býður félagið upp á hressingu í bækistöðvum félagsins (Þöll) við Kaldárselsveg. Verkfæri og trjáplöntur verða á staðnum. Nánari upplýsingar í síma: 555-6455 eða 894-1268
Flokkur: Fréttir 2023