Opið annan í hvítasunnu
Gróðrarstöðin er opin, mánudaginn 21. maí 2018 annan í hvítasunnu, frá kl. 10.00 – 17.00.
Gróðrarstöðin er opin, mánudaginn 21. maí 2018 annan í hvítasunnu, frá kl. 10.00 – 17.00.
Utanvegahlaup Hauka fer fram núna annan í Hvítasunnu. Starfsmenn félagsins hafa unnið að lagfæringu á stígum hér í upplandinu sem eru hluti af hlaupaleiðinni. Almennings-íþróttadeild Hauka hefur lagt félaginu til fjárstuðning til verksins. Unnið var að gerð steinbrúar yfir Grófarlæk í Grófargili í vikunni. Á myndinni sést Árni Þórólfsson við brúnna. Ljósmynd: Jökull Gunnarsson.
Utanvegahlaup Hauka fer fram núna annan í Hvítasunnu. Starfsmenn félagsins hafa unnið að lagfæringu á stígum hér í upplandinu sem eru hluti af hlaupaleiðinni. Almennings-íþróttadeild Hauka hefur lagt félaginu til fjárstuðning til verksins. Unnið var að gerð steinbrúar yfir Grófarlæk í Grófargili í vikunni. Á myndinni sést Árni Þórólfsson við brúnna. Ljósmynd: Jökull Gunnarsson.
Laugardaginn 21. apríl síðastliðin efndi félagið til fuglaskoðunar um Höfðaskóg og við Hvaleyrarvatn. Um 25 manns mættu en gangan var hluti af dagskrá „Bjartra daga“ sem haldnir voru í Hafnarfirði dagana 18. – 22. apríl. Hannes Þór Hafsteinsson og Steinar Björgvinsson voru leiðsögumenn. Eftirtaldar fuglategundir sáust eða það heyrðist í þeim þennan dag. Starar, skógarþrestir,…
Laugardaginn 21. apríl kl. 11. Fuglaskoðun í Höfðaskógi. Þekkir þú fiðraða nýbúa skógarins? Hannes Þór Hafsteinsson og Steinar Björgvinsson verða leiðsögumenn í fuglaskoðunarferð. Lagt af stað frá Þöll við Kaldárselsveg. Takið með ykkur sjónauka. Gangan tekur um eina og hálfa klukkustund. Kaffi og spjall í Þöll að göngu lokinni. Nánari upplýsingar í síma: 555-6455. Einnig…
Hvítasunnuhlaup Hauka hefur verið haldið nú í all nokkur ár. Um er að ræða vinsælasta utanvegahlaup landsins. Stór hluti hlaupsins fer fram á athafnasvæði Skógræktarfélags Hafnarfjarðar. Almenningsíþróttadeild Hauka hefur styrkt Skógræktarfélagið og hefur styrkfénu verið varið til lagfæringa og viðhalds á hlaupleiðunum á umsjónarsvæði Skógræktarfélagsins.
Kringum 50 manns mættu á aðalfund félagsins í Apótekinu, Hafnarborg fimmtudagskvöldið 22. mars. Að loknum aðalfundarstörfum kynntu þeir Björn Guðbrandur og Hjálmar uppgræðslu „Gróðurs fyrir fólk í landnámi Ingólfs“ í Krýsuvík. Að því loknu flutti Helena Marta Stefánsdóttir skógvistfræðingur erindi um matsveppi. Gunnar Svavarsson var kosinn fundarstjóri. Boðið var upp á kaffiveitingar í hléi sem…
Minnum á aðalfund félagsins fimmtudagskvöldið 22. mars kl. 20.00 í Apótekinu, Hafnarborg. Gengið inn frá Strandgötu. Dagskrá: sjá hér að neðan.
Aðalfundur félagsins verður haldinn fimmtudaginn 22. mars 2018 í Apótekinu, Hafnarborg, Strandgötu 34 Kl. 20.00 – 20.55 • Venjuleg aðalfundarstörf. • Björn Guðbrandur Jónsson kynnir starfsemi „Gróðurs fyrir fólk í landnámi Ingólfs“ Kaffihlé Kl. 21. 15 – 22.00 • Helena Marta Stefánsdóttir skógvistfræðingur flytur erindi sem hún nefnir „Matsveppirnir í skóginum“. Kaffiveitingar eru í…
Félagsskírteini og aðalfundarboð ættu að berast félögum í þessari og næstu viku. Hafið samband í síma: 555-6455 eða 894-1268 eða sendið skeyti á netfangið skoghf@simnet.is ef þið fáið ekki póst frá félaginu á næstu dögum. Við hvetjum þá félaga sem ekki hafa borgað árgjaldið fyrir árið 2017 að gera það sem fyrst en greiðsluseðlar voru…