Félagsskírteini og aðalfundarboð ættu að berast félögum í þessari og næstu viku. Hafið samband í síma: 555-6455 eða 894-1268 eða sendið skeyti á netfangið skoghf@simnet.is ef þið fáið ekki póst frá félaginu á næstu dögum. Við hvetjum þá félaga sem ekki hafa borgað árgjaldið fyrir árið 2017 að gera það sem fyrst en greiðsluseðlar voru sendir út síðastliðið haust og kröfur stofnaðar í heimabanka.
Þeir sem ekki hafa greitt árgjald tvö ár í röð detta út af félagaskrá. Viljir þú gerast félagi má fara inn á heimasíðu félagsins skoghf.is og smella á flipann "um félagið" og síðan "skrá sig í félagið".
Aðalfundur Skógræktarfélags Hafnarfjarðar verður haldinn fimmtudaginn 22. mars kl. 20.00 í Apótekinu, Hafnarborg.