Aðalfundur félagsins verður haldinn fimmtudaginn 22. mars 2018 í Apótekinu, Hafnarborg, Strandgötu 34
Kl. 20.00 – 20.55
• Venjuleg aðalfundarstörf.
• Björn Guðbrandur Jónsson kynnir starfsemi „Gróðurs fyrir fólk í landnámi Ingólfs“
Kaffihlé
Kl. 21. 15 – 22.00
• Helena Marta Stefánsdóttir skógvistfræðingur flytur erindi sem hún nefnir „Matsveppirnir í skóginum“.
Kaffiveitingar eru í boði félagsins. Hægt er að gerast félagi með því að senda póst á skoghf@simnet.is eða á heimasíðu félagsins skoghf.is (flipinn "um félagið" og síðan "skrá mig í félagið"). Árgjaldið er kr. 2.500,-. Með því að gerast félagi styður þú við skógrækt og uppbyggingu á útivistarsvæðinu í upplandi Hafnarfjarðar. Félagar njóta afsláttarkjara hjá ýmsum fyrirtækjum eins og Gróðrarstöðinni Þöll ehf.