Kringum 50 manns mættu á aðalfund félagsins í Apótekinu, Hafnarborg fimmtudagskvöldið 22. mars.
Að loknum aðalfundarstörfum kynntu þeir Björn Guðbrandur og Hjálmar uppgræðslu „Gróðurs fyrir fólk í landnámi Ingólfs“ í Krýsuvík. Að því loknu flutti Helena Marta Stefánsdóttir skógvistfræðingur erindi um matsveppi.
Gunnar Svavarsson var kosinn fundarstjóri.
Boðið var upp á kaffiveitingar í hléi sem Marselína Pálsson sá um.
Á myndinni eru frá vinstri: Björn Guðbrandur Jónsson framkvæmdastjóri Gróðurs fyrir fólk…, Hjálmar Hjálmarsson formaður Gróðurs fyrir fólk… og Helena Marta Stefánsdóttir skógvistfræðingur. Þeim voru afhent töfratré í þakklætisskyni frá félaginu fyrir frábæra fyrirlestra.