Gengið um Setbergshverfið
Gengið um Setbergshverfið. Mæting við Setbergsskóla kl. 10.00. Gengið verður um hverfið og hugað að garðagróðri. Hvert er hæðsta tré hverfisins?
Gengið um Setbergshverfið. Mæting við Setbergsskóla kl. 10.00. Gengið verður um hverfið og hugað að garðagróðri. Hvert er hæðsta tré hverfisins?
Laugardaginn kemur 18. október stendur félagið fyrir göngu um Setbergshverfið í Hafnarfirði. Hugað verður að trjágróðri í hverfinu. Hvert er hæsta tréð? Lagt af stað frá Setbergsskóla Hlíðarbergi 2 kl. 10.00. Gangan tekur um tvær klukkustundir. Allir velkomnir. Stjórn og starfsfólk Nánari upplýsingar: Hugað verður að trjágróðri í hverfinu, en þar eru nokkur tré frá…
Nýverið heimsóttu nemendur Landgræðsluskóla Sameinuðu Þjóðanna félagið heim ásamt umsjónaraðilum námsins. Landgræðsluskóli SÞ er staðsettur hérlendis og eru bækistöðvar hans í húsakynnum Landbúnaðarháskóla Íslands á Keldnaholti. Nemendur eru hér í 6 mánuði í senn við bóklegt og verklegt nám í landgræðslu- og vistheimtarfræðum. Um er að ræða nemendur sem hafa fyrir menntun og starfa á…
Rúmlega 30 manns mættu í kvöldgöngu félagsins og Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar. Anna Borg Harðardóttir formaður Krabbameinsfélags Hfj. ávarpaði gesti. Sr. Jón Helgi Þórarinsson flutti hugvekju í Værðarlundi og Jóhann Guðni Reynisson flutti nokkur frumort ljóð í tilefni dagsins. Steinar Björgvinsson framkvæmdastjóri Skógræktarfélagsins var leiðsögumaður í gegnum skóginn. Í lokin var boðið upp á heitt súkkulaði og…
Þriðjudagskvöldið 23. september standa Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar og Skógræktarfélag Hafnarfjarðar fyrir ljósagöngu í Höfðaskógi. Gengið verður frá Gróðrarstöðinni Þöll við Kaldárselsveg kl. 19.00. Leiðsögumaður verður Steinar Björgvinsson. Á leiðinni mun sr. Jón Helgi Þórarinsson flytja hugvekju og Jóhann Guðni Reynisson flytja frumort ljóð í tilefni göngunnar. Þátttakendur eru hvattir til að hafa með sér viðeigandi ljósfæri s.s.…
Á fyrstu árum Skógræktarfélags Hafnarfjarðar var haldinn sjálfboðaliðadagur á vorin, en síðan var þessu hætt. Fyrir nokkrum árum var ákveðið að reyna þetta á nýjan leik að hausti til þegar sumarstarfsfólkið hefur hætt störfum. Heppnaðist þessi tilraun það vel að síðan hefur þetta verið árlegur viðburður. Öllum er frjálst að mæta og taka þátt í…
Svokallaður „sjálfboðaliðadagur“. Gróðursett verður í Vatnshlíð í minngarlund um hjónin Hjálmar R. Bárðarson og Else S.Bárðarson. Mæting í Vatnshlíð norðan Hvaleyrarvatns kl. 10.00.
Gróðursetningardagur í Vatnshlíð Laugardaginn 13. september kl. 10:00 stendur Skógræktarfélag Hafnarfjarðar fyrir árlegum Sjálfboðaliðadegi þar sem áhersla er lögð á gróðursetningu fjölbreyttra trjátegunda. Allir sem hafa áhuga á að taka þátt í að hjálpa til við að gróðursetja nokkrar tráplöntur og græða landið eru velkomir. Staðsetningin er í miðri Vatnshlíð norðan við Hvaleyrarvatn. Þeir sem…
Nýverið fór hluti stjórnar og starfsmanna félagsins ásamt fleirum í vettvangsferð í skóginn í Undirhlíðum. Gengið var um Kúadal og upp Kýrskarð og yfir í Skólalund (Litli-skógarhvammur). Skógurinn í Undirhlíðum hefur vaxið mikið og er víða þörf á grisjun. Skógræktarfélag Hfj. hefur fengið vilyrði um styrk af hálfu Landgræðslusjóðs til grisjunar í Undirhlíðaskógi. Skógrækt hófst…
Gróðrarstöðin Þöll er opin fimmtudaginn 14. ágúst frá kl. 09.00 – 17.00. LOKAÐ föstudag – sunnudags. Opnum aftur mánudaginn 18. ágúst kl. 09.00. Síminn er 555-6455, 894-1268 (Steinar) og 849-6846 (Árni). Hægt er að senda fyrirspurnir á netfangið skoghf@simnet.is