Þá er síðasta helgin fyrir jól að renna upp. Starfsmenn og sjálfboðaliðar Skógræktarfélags Hafnarfjarðar verða að störfum í Höfðaskógi við Kaldárselsveg laugardainn 22. desember, en ekki verður opið á Þorláksmessu sem ber upp á sunnudag að þessu sinni. Þeir sem enn eiga eftir að ná sér í fallegt íslenskt jólatré geta komið við í Höfðaskógi á vikunni um miðjan daginn eða á laugardaginn. Leiðin er næsta auðveld, en ekið er eftir Kaldárselsvegi frá gatnamótum ofan við Kirkjugarð Hafnarfjarðar í áttina að hesthúsahverfi Sörla. Þegar komið er að hesthúsahverfinu er ekið brekkuna í áttina að Kaldárseli og farið framhjá vegvísi sem vísar á Íshesta og er á vinstri hönd. Halda skal áfram framhjá þessu skilti og örstuttan spöl yfir smá hæðardrag þar til skilti Skógræktarfélagsins blasir við á hægri hönd. Þar er beygt út af veginum til hægri og inn á bílastæði á hlaðinu við Selið þar sem tekið er á móti öllum opnum örmum.
Flokkur: Fréttir 2012