Um 45 manns mættu á aðalfund félagsins fimmtudagskvöldið 27. mars síðastliðinn kl. 20.00 í Hafnarborg við Strandgötu. Árni Þórólfsson, Ingvar Viktorsson og Sigurður Einarsson voru endurkjörnir í stjórn félagsins. Fundurinn samþykkti tillögu stjórnar að árgjald félagsins verði kr. 2.000,-. Að loknum aðalfundarstörfum og kaffihléi flutti Björn Traustason sérfræðingur í landfræðilegum upplýsingakerfum erindi um kortlagningu skóglenda í Hafnarfirði. Hann fjallaði um núverandi stöðu og mögulega framtíðarsýn. Fram kom hjá Birni að Hafnarfjörður hefur mesta hlutfallslega skógarþekju á landinu miðað við stærð sveitarfélagsins. Góður rómur varð gerður að erindi Björns og lauk fundi rétt rúmlega kl. 22.00.
Flokkur: Fréttir 2014