Göngu um Áslandið frestað til 24. okt
Göngu um Áslandið sem fyrirhuguð var laugardaginn 10. október verður frestað til laugardagsins 24. október. Nángar auglýst síðar.
Göngu um Áslandið sem fyrirhuguð var laugardaginn 10. október verður frestað til laugardagsins 24. október. Nángar auglýst síðar.
Yfir 60 manns á öllum aldri mættu í ljósagöngu Skógræktarfélagsins og Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar síðastliðið þriðjudagskvöld 6. október. Gengið var um Höfðaskóg í myrkrinu og voru þátttakendur með vasaljós og aðra ljósgjafa til að sjá niður fyrir sig. Rigndi nokkuð á þátttakendur en á milli sást upp í stjörnubjartan himinn og til norðurljósa. Eftir gönguna…
Krabbameinsfélag Hfj. og Skógræktarfélag Hfj. bjóða til skógargöngu þriðjudagskvöldið 6. október kl. 19.30. Við hittumst í Þöll við Kaldárselsveg. Við upphaf göngunnar flytur Anna Borg Harðardóttir formaður Krabbameinsfélags Hfj. ávarp. Síðan verður gengið út í skóg undir leiðsögn Steinars Björgvinssonar hjá Skógræktarfélaginu. Gangan tekur um eina klukkustund. Að henni lokinni verður boðið upp á…
Að morgni sunnudagsins 27. september mættu rúmlega 30 sjálfboðaliðar í Vatnshlíðina, skammt frá lundinum sem helgaður er minningu hjónanna Hjálmars R. Bárðarsonar og Else Sörensen Bárðarson, til árlegrar gróðursetningar. Búið var að flytja rúmlega 1.300 skógarplöntur á staðinn og voru þær gróðursettar á tveimur tímum. Siðustu árin hafa sjálfboðaliðar úr röðum félagsmanna og fleira fólk…
Rúmlega 30 félagsmenn í Skógræktarfélagi Hafnarfjarðar mættu á sunnudagsmorgni 27. september í Vatnshlíð til að gróðursetja rúmlega 1.300 trjáplöntur í ræktunarreit sem kenndur er við hjónin Hjálmar R. Bárðarson og Else Sörensen Bárðarson. Þetta hefur verið fastur liður í starfsemi félagsins á undanförnum árum og hafa félagsmenn jafnan tekið virkan þátt í þessu skemmtilega starfi.…
Sjálfboðaliðadagur – laugardaginn 26. september kl. 10.00 – 12.00: Gróðursett verður í Vatnshlíðarlund. Vatnshlíðarlundur er minningarlundur um hjónin Hjálmar R. Bárðarson og Else S. Bárðarson. Mæting í Vatnshlíð norðan Hvaleyrarvatn. Boðið upp á hressingu í Þöll að gróðursetningu lokinni.
Hinn árlegi sjálfboðaliðadagur Skógræktarfélags Hafnarfjarðar verður sunnudaginn næstkomandi 27. september kl. 11.00 – 13.00: Gróðursett verður í Vatnshlíðarlund við Hvaleyrarvatn. Vatnshlíðarlundur er minningarlundur um hjónin Hjálmar R. Bárðarson og Else S. Bárðarson. Mæting í Vatnshlíð norðan við Hvaleyrarvatn, á hægri hönd þegar ekið er niður að Hvaleyrarvatni frá Kaldárselsvegi. Boðið upp á hressingu í Þöll…
Gróðrarstöðin Þöll verður lokuð helgina 19. – 20. september. Jökull Gunnarsson er á bakvakt og búsettur á staðnum og getur afgreitt plöntur ef nauðsyn krefur (sími: 772-5211). Sími framkvæmdastjóra (Steinar Björgvinsson) er 894-1268 og netfang: steinsh@mmedia.is. Opnum aftur mánudaginn 21. september kl. 10.00. Opið virka daga í september frá kl. 10.00 – 18.00.
Gróðrarstöðin Þöll við Kaldárselsveg er opin frá kl. 10.00 – 18.00 virka í september og frá kl. 11.00 – 17.00 á laugardögum. Síminn er: 555-6455 eða 772-5211 (Jökull Gunnarsson). Fyrirspurnir má senda á netfangið skoghf@simnet.is. 15% afsláttur af öllum plöntum til félaga í skógræktarfélögum og til félaga í Garðyrkjufélagi Íslands. Nú er rétti tíminn til…
Opið sunnudaginn 6. september frá kl. 10.00 – 17.00. 20% afsláttur af öllum plöntum. Mikið úrval af trjám og runnum, rósum, reynitegundum, sígrænu, toppum, kvistum, skógaplöntum, berjarunnum, ávaxtatrjám og fleiru. Síminn er: 555-6455 eða 894-1268 (Steinar). Netfangið er: skoghf@simnet.is