Yfir 60 manns á öllum aldri mættu í ljósagöngu Skógræktarfélagsins og Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar síðastliðið þriðjudagskvöld 6. október. Gengið var um Höfðaskóg í myrkrinu og voru þátttakendur með vasaljós og aðra ljósgjafa til að sjá niður fyrir sig. Rigndi nokkuð á þátttakendur en á milli sást upp í stjörnubjartan himinn og til norðurljósa. Eftir gönguna var boðið upp á heitt súkkulaði og kleinur í bækistöðvum Þallar og Skógræktarfélagsins.