Hinn árlegi sjálfboðaliðadagur Skógræktarfélags Hafnarfjarðar verður sunnudaginn næstkomandi 27. september kl. 11.00 – 13.00: Gróðursett verður í Vatnshlíðarlund við Hvaleyrarvatn. Vatnshlíðarlundur er minningarlundur um hjónin Hjálmar R. Bárðarson og Else S. Bárðarson. Mæting í Vatnshlíð norðan við Hvaleyrarvatn, á hægri hönd þegar ekið er niður að Hvaleyrarvatni frá Kaldárselsvegi. Boðið upp á hressingu í Þöll að gróðursetningu lokinni. Allir velkomnir. Öll hjálp vel þegin. Tilvalið tækifæri að kynnast skógræktarfólki í bænum. Nánari upplýsingar í síma: 555-6455 (Þöll), 894-1268 (Steinar framkvæmdastjóri) eða 849-6846 (Árni skógarvörður). Plöntur og verkfæri á staðnum.
Flokkur: Fréttir 2015