Skógræktarfélag Hafnarfjarðar er áhugamannafélag stofnað árið 1946. Félagið sér um skógana og útivistarsvæðin í upplandi bæjarins. Helstu umsjónarsvæði félagsins eru Gráhelluhraunsskógur, Höfðaskógur, Seldalur, Klifsholt og Undirhlíðar. Í því felst m.a. gróðursetning trjáplantna, grisjun, stígagerð, hreinsun, eftirlit, snjómokstur af helst göngu- og hjólastígum, móttaka hópa og fleira.
Gegn framvísun félagsskírteinis njóta félagar afsláttar í ýmsum gróðrarstöðvum og garðyrkjuverslunum. Félagar fá 15% afslátt í Þöll. Með því að gerast félagi hjálpar þú til við að bæta uppbyggingu og viðhald útivistarskóganna í upplandi Hafnarfjarðar.
Félagið býður upp á ýmsa viðburði yfir árið. Þeir eru auglýstir hver og einn sérstaklega t.d. á samfélagsmiðlum. Viðburðadagatal birtist hér á heimasíðunni undir flipanum „Dagskrá“. Allir viðburðir eru ókeypis og öllum opnir. Félagar í Skógræktarfélagi Hfj eru nú um þúsund talsins.
Til gerast félagi opnar þú flipann „Um félagið“ og síðan „Skrá mig í félagið“. Þér verður síðan send slóð í tölvupósti sem gerir þér kleyft að virkja rafrænt félagsskírteini. Árgjaldið í Skógræktarfélagi Hfj er aðeins kr. 4.000,-. Árgjald fyrir fyrirtæki og samtök er kr. 9.500,-.






