Starfsmenn Íslandsbanka aðstoða
Nýlega kom 11 manna hópur frá fjármáladeild Íslandsbanka og unnu hálfan daginn hjá félaginu. Skógræktarfélag Hafnarfjarðar þakkar þessum vaska hópi kærlega fyrir þeirra framlag
Nýlega kom 11 manna hópur frá fjármáladeild Íslandsbanka og unnu hálfan daginn hjá félaginu. Skógræktarfélag Hafnarfjarðar þakkar þessum vaska hópi kærlega fyrir þeirra framlag
Gróðrarstöðin er opin frá kl. 10.00 – 17.00 laugardaginn 1. júlí. Mikið úrval af trjám og runnum í pottum. Síminn er: 555-6455 eða 894-1268.
Opið laugardaginn 24. júní 2017 frá kl. 10.00 – 17.00. Mikið úrval af trjám og runnum, sígrænu, rósum, berjarunnum, sýrenum, reyni og fleiru. Síminn er: 555-6455 eða 894-1268 (Steinar). Netfang: skoghf@simnet.is. Allir félagar í skógræktarfélögum og Garðyrkjufélagi Íslands fá 15% afslátt af öllum plöntum.
Viðarvinir verða með sýningu á renndum, útskornum og tálguðum trémunum í bækistöðvum félagsins og Þallar laugardaginn 3. júní 2017. Sýningin stendur frá kl. 10.00 – 18.00. Viðarvinir eru hópur handverksfólks í Hafnarfirði sem hefur vinnuaðstöðu í Lækjarskóla. Viðarvinir munu m.a. sýna muni úr íslensku timbri m.a. úr skógum Skógræktarfélags Hafnarfjarðar. Allir eru velkomnir og er…
Hin árlega fuglaskoðunarferð félagsins verður laugardaginn 27. maí kl. 10.00. Lagt verður af stað frá Þöll við Kaldárselsveg. Takið með ykkur sjónauka. Fuglaskoðunar-gangan tekur um tvær klukkustundir. Leiðsögumaður verður Steinar Björgvinsson. Myndin er af auðnutittling tekin af Björgvin Sigurbergssyni.
Í gær, föstudaginn 19. maí, færðu þau hjónin Halldóra Halldórsdóttir og Þórólfur Þorgrímsson félaginu að gjöf nýtt sexhjól. Sexhjólið mun nýtast félaginu vel við dagleg störf eins og flutning á trjám, grisjunarvið, áburði, efni í stíga, við ruslahreinsun og fleira. Stjórn og starfsfólk félagsins þakkar þeim heiðurshjónum Halldóru og Þórólfi kærlega fyrir þessa veglegu…
Þöll opnar aftur formlega laugardaginn 13. maí 2017. Opið verður þann dag frá kl. 10.00 – 17.00. Hægt er að nálgast plöntur fyrr ef þörf krefur. Hafið samband í síma: 555-6455 eða 894-1268 (Steinar). Einnig má senda fyrirspurnir á netfangið: skoghf@simnet.is.
Það var fámennt en góðmennt í skógargöngu félagsins í Gráhelluhrauni á laugardaginn var. Næsta ganga á vegum félagsins er fuglaskoðun í maí. Nánar auglýst síðar.
Skógarganga laugardaginn 22. apríl 2017 kl. 13.00. Töfrar skógarins í Gráhelluhrauni. Í ár eru 70 ár liðin frá því að fyrsta trjáplantan var gróðursett í Gráhelluhrauni. Í þessari göngu verður lífinu í skóginum gefin sérstakur gaumur en skógurinn er einnig þekktur undir nafninu "Tröllaskógur". Gangan tekur um eina og hálfa klukkustund. Boðið verður upp…
Félagsskírteini fyrir árið 2017 voru send út í síðasta mánuði (mars) ásamt aðalfundarboði. Þeir félagar sem ekki hafa greitt tvö ár í röð fengu ekki sent félagsskírteini. Skírteini viðkomandi verður sent um leið og greiðsla berst en kröfur vegna árgjalds 2016 voru stofnaðar í heimabanka í fyrra-haust. Eitthvað af póstinum sem innihélt félagsskírteini og aðalfundarboð…