Laugardaginn 29. september verður hinn árlegi sjálfboðaliðadagur félagsins. Við ætlum að gróðursetja í Vatnshlíðina við Hvaleyrarvatn í minningarlund um hjónin Hjálmar R. Bárðarson og Else S. Bárðarson. Við hefjumst handa kl. 10.00. Plöntur og verkfæri verða á staðnum. Best er að komast að svæðinu með því að beygja til hægri fljótlega eftir að komið er inn á Hvaleyrarvatnsveg og aka vegstubbinn vestur með hlíðinni á enda. Allir sjálfboðaliðar velkomnir. Margar hendur vinna létt verk. Nánari upplýsingar eru veittar í síma félagsins: 555-6455.
Flokkur: Fréttir 2012