Aðalfundur félagsins verður haldinn í Hafnarborg, Strandgötu 34, fimmtudaginn 27. mars kl. 20.00. Að loknum venjulegum aðalfundarstöfum mun Björn Traustason sérfræðingur í landfræðilegum upplýsingakerfum hjá rannsóknarstöð skógræktarinnar á Mógilsá flytja erindi sem hann nefnir "Skóglendi í umdæmi Hafnarfjarðar – núverandi staða og möguleg framtíðarsýn". Félagið býður upp á kaffi í hléi. Allir velkomnir. Nánari upplýsingar í síma: 555-6455 eða 894-1268.
Flokkur: Fréttir 2014