Fundarstjóri, heiðursfélagi, kæru félagar.
Mjög kalt var áfram í janúar eins og í desember. Svo hlýnaði verulega í febrúar og kólnaði svo aftur í mars.
Við byrjuðum árið á grisjunarvinnu í skóginum í Vatnshlíð þar sem Kristinn Skæringsson átti á sínum tíma land. Svo færðum við okkur í furuskóginn nyrst og vestast í Selhöfða og þar í kring. Efniviðurinn var svo nýttur í eldivið og kurl. Einnig var klippt og sagað meðfram vegum og stígum.
Það voraði ágætlega framan af en síðan aðfaranótt 23. maí gerði mjög hvassa suðvestanátt sem bar mikið af sjóúða langt inn á land með þeim afleiðingum að nýútsprunginn trjágróðurinn sérstaklega næst ströndinni varð allur svartur og náði sér vart á strik aftur fyrr en upp úr miðju sumri. Fyrir vikið varð blómgun trjáa lítil sem engin og þar af leiðandi lítið sem ekkert af trjáfræi um haustið.
Vegna vetrar-, vorkulda og saltveðurs drapst mikið af plöntum í uppeldi í Þöll eins og hjá öðrum garð- og skógarplöntuframleiðendum.
Minna bar á sníkjudýrum í trjágróðri í fyrra en mörg undanfarin ár. Trúlega spilar óhagstætt tíðarfar þar inn í. Birkiryð fór þó illa með birki í uppeldi síðsumars.
Sem betur fer sluppum við alveg við gróðurelda í fyrra enda maí ekki eins þurr eins og svo algengt var hér áður fyrr.
Ein mesta breyting á starfsemi félagsins átti sér stað í fyrra þegar Landsvirkjun tilkynnti að hún myndi hætta að bjóða félaginu sumarstarfsfólk í tvo mánuði eins verið hefur síðastliðin 25 ár. Til að minnka höggið bauð Landsvirkjun félaginu ákveðna fjárhæð í tvö ár til að ráða nokkur ungmenni og leigja vinnubíl. Réð því félagið 6 ungmenni á aldrinum 16 – 18 ára í fyrra og leigði pallbifreið fyrir styrk frá Landsvirkjun. Verður sami háttur hafður á í ár en svo er þessu samstarfi lokið. Landsvirkjunar-starfsfólkið sá m.a. um að sækja grisjunarvið út í skóg og flytja upp í stöð, gróðursetja, lagfæra stíga og hreinsa útivistarsvæðið.
Svo starfaði hópur á vegum Vinnuskóla Hafnarfjarðar hjá okkur í fyrrasumar. Flokkstjórar voru þau Guðrún Sunna og Þórir.
Í maí í fyrra störfuðu í tæpar tvær vikur hjá okkur í sjálfboðavinnu þrír ungir nemar við “Friends Academy” í New York. Þetta voru systkinin Sidney og Richard Wang ásamt Richard Zhu. Til að útskrifast þurfa nemarnir að sinna samfélagsþjónustu / sjálfboðavinnu af einhverju tagi og kynna svo upplifun sína og segja frá við hvað þau fengust þegar heim er komið. Milligöngu um komu þeirra hafði vinur okkar Edward Dugger. Móðir systkinanna Ling og Wang var einnig með í för og færði hún félaginu að gjöf setbekk sem komið var fyrir í skóginum og ber hann áletrun Wang-fjölskyldunnar.
Ungur maður frá Frakklandi, Valentine, starfaði hjá okkur í júlí og fram í ágúst. Starfaði hann við hvers konar skógar- og garðyrkjustörf ásamt verkstjórn.
Sveinn Sigurjónsson félagi okkar og vinur lést í mars í fyrra. Sveinn kom iðulega og spilaði á harmonikkuna á aðventunni í tengslum við jólatrjáasölu félagsins ásamt því að spila á öðrum viðburðum á vegum félagsins. Hans verður sárt saknað en hann átti stóran þátt í því að skapa það skemmtilega andrúmsloft sem einkennir jólatrjáasölu félagsins.
Í september lést Þórólfur Þorgrímsson á 95. aldursári en Þórólfur var dyggur stuðningsmaður og styrktaraðili félagsins.
Í nóvember lést Sigurbergur Sveinsson í Fjarðarkaup sem einnig var dyggur styrktar og stuðningsmaður félagsins.
Helstu skipulögðu viðburðir á vegum félagsins í fyrra voru:
Aðalfundur félagsins fór fram 23. mars hér í Hafnarborg. Gunnar Svavarsson var kjörinn fundarstjóri. Að loknum venjulegum aðalfundarstörfum og kaffihléi flutti Brynja Hrafnkelsdóttir sérfræðingur hjá Skógræktinni erindi um meindýr á trjágróðri.
Fuglaskoðun félagsins fór fram laugardaginn 22. apríl. Aðal – leiðsögumaður var Hannes Þór Hafsteinsson. Alls sáust 17 fuglategundir en gengið var um Höfðaskóg og niður að Hvaleyrarvatni. Viðburðurinn var hluti af dagskrá bæjarhátíðarinnar “Bjartra daga”.
Á Jónsmessu, laugardaginn 24. júní var svo fjölskyldudagurinn “Líf í lundi” haldinn hátíðlegur við bækistöðvar félagsins og Þallar. Mörg hundruð manns mættu. Fjöldinn var meiri en nokkru sinni áður. Haffi Haff skemmti, boðið var andlitsmálningu og ratleik fyrir yngstu kynslóðinu. Grillaðar voru pulsur. Hoppukastali var á hlaðinu. Pop up kaffihús í boði David á Pallett. Boðið var upp á skógargöngu með leiðsögn Jónatans Garðarssonar. Listahópur Vinnuskóla Hafnarfjarðar og Larpið stóðu fyrir leikjum og listsköpun í skóginum. Hvílíkur dagur!
9. ágúst var boðið upp á fræðslugöngu um trjá- og rósasafnið í Höfðaskógi í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ. Um 50 manns mættu í gönguna þetta síðdegi.
Laugardaginn 26. ágúst hittust ættingjar Hólmfríðar Finnbogadóttur fyrrum formanns- og framkvæmdstjóra félagsins og gróðursettu trjáplöntur til minningar um frænku sína í minningarlund þeirra hjóna Hólmfríðar og Reynis í hrauninu suður af Sléttuhlíð.
Sjálfboðaliðadagurinn fór fram laugardaginn 16. september. Um tuttugu sjálfboðaliðar mættu þrátt fyrir rok og rigningu. Alls voru gróðursettar um 1000 trjáplöntur þennan dag og dagana í kring af öðrum sjálfboðaliðum og starfsmönnum félagsins. Gróðursett var í hlíðarnar á móts við Hamranesflugvöll þar sem öskuhaugar bæjarins og síðan jarðvegstippur voru áður.
Ljósaganga félagsins og Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins fór 24. október. Allt var með hrekkjavöku-sniði. Um 100 manns mættu. Þótti viðburðurinn heppnast einstaklega vel. Daníel Erlingsson á stóran þátt í því en hann lánaði félaginu safn sitt af alls kyns verum og hlutum sem hafa skírskotun til hrekkjavöku. Undirbúningshópur var stofnaður í aðdraganda göngunnar sem hafði hist viku áður, skorið út grasker og lagt á ráðin um skipulag göngunnar. Sérstakar þakkir til ykkar allra sem lögðuð á ykkur vinnu við að gera hrekkjavöku-gönguna svona ógleymanlega.
Jólatrjáa- og skreytingasala félagsins fór sem fram alla daga í desember fram að jólum og gekk vel. Meira var höggvið og selt af trjám úr okkar eigin skógum samanborið við undanfarin ár. Pálmar Örn Guðmundsson formaður Skógræktarfélags Grindavíkur kom tvisvar á aðventunni og lék á gítar og söng jólalög og þótti takasta einstaklega vel til að skapa sannkallaða jólastemmningu.
Eitt nýtt skilti var sett upp við Vatnshlíðarlund þar sem minningarlundur Hjálmars og Else Bárðarson er. Það var Magnús Helgason sem sá um gerð skiltisins en hann vann það og fleira fyrir félagið endurgjaldslaust.
Talsvert var um formlegar heimsóknir í fyrra. Nemendur og kennarar við blómaskreytingabraut Garðyrkjuskólans heimsóttu félagið í febrúar og fræddust um notkun á efni úr skóginum til skreytinga.
Nemendur í vöruhönnun við Listaháskóla Íslands heimsóttu félagið í byrjun mars til fræðast um allt er tengist birki.
Um 40 nemendur Garðyrkjuskólans ásamt kennara heimsóttu okkur í mars til að fræðast um hvers konar trjágróður í garðyrkju og skógrækt.
Hópur barna í leikskólanum Hvammi heimsótti félagið í maí og gróðursettu tré í leiðinni. Nemendur í 4. bekk Sjálandsskóla, Garðabæ komu í heimsókn um vorið til að fræðast um umhverfismál og þess háttar.
Nemendur 1. og 2. bekkjar Waldorfskólans, Lækjarbotnum komu einnig í heimsókn um vorið til að fá fræðslu og gróðursetja tré.
Nemendur í skógfræði og umhverfisskipulagi heimsóttu svo félagið um haustið til að fræðast um trjágróður.
Meðlimir Trjáræktarklúbbsins komu í heimsókn um miðjan september og skoðuðu gróðrarstöðina og trjásafnið og versluðu í leiðinni.
Hópur kvenna í Kvenfélagi Fríkirkjunnar heimsóttu félagið í byrjun október og fékk fræðslu um starfsemi skógræktarfélagsins og slóu upp veislu í Þöll. Skógræktarfélagið gaf kvenfélagskonum síðan efni til leiðisgreinagerðar fyrir jólin.
Laugardaginn 18. nóvember heimsóttu svo vinir okkar frá Cuxhaven félagið ásamt stjórn vinabæjarfélagsins og velunnurum og þáðu veitingar í Þöll. Ræður voru haldnar og skipst á gjöfum. Heimsóknin var eins og venjulega í tengslum við afhendingu vinabæjartrésins frá Cuxhaven sem sett var upp og tendrað óvenju snemma í fyrra.
Á aðventunni komu svo börn úr nokkrum leikskólum bæjarins í heimsókn og völdu sér jólatré í skóginum, hittu jólasveininn og fengu svo kakó í lokin og þökkuðu svo fyrir sig með söng.
Leikskólinn Norðurberg kom nokkrum sinnum yfir vetrarmánuðina með nemendur sína til að nýta skóginn til útikennslu og útiveru. Þau hafa svo fengið að nota aðstöðuna okkar til að matast og komast á salerni. Útskriftarnemendur Norðurbergs komu svo um vorið og gróðursettu nokkrar trjáplöntur í rjóðrinu sínu.
Starfsmenn félagsins sóttu nokkra fundi og ráðstefnur á árinu. 14. febrúar var boðið upp á fræðslufund fyrir skógræktendur um gróðurelda, forvarnir og skipulag í Kríunesi við Elliðavatn sem Almannavarnir stóðu fyrir.
Starfsmenn og stjórn félagsins sóttu ráðstefnu í byrjun mars um Græna stíginn sem fór fram í Arion banka, Borgartúni að frumkvæði skógræktarfélaganna og sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu.
13. apríl sóttu starfsmenn félagsins smáráðstefna á Mógilsá á vegum Norræna genabankans um áskoranir og vandamál við framleiðslu skógarplatna í stórum gróðrarstöðvum.
Einnig sóttu starfsmenn og sumir stjórnarliðar fundi um nýtt deiliskipulag skógarins í Gráhelluhrauni á árinu.
Frisbígolfsamband Íslands og Frisbígolffélag Hafnarfjarðar ásamt Geir Bjarnasyni íþrótta- og tómstundafulltrúa komu að máli við félagið snemma á árinu varðandi uppsetningu á 18 holu frisbígolfvelli í skóginum. Þessar umræður voru þegar hafnar í fyrrahaust. Haldnir voru nokkrir fundir á árinu hvað þetta varðar með ýmsum er málið varðar. Heimsóttum við m.a. frisbígolfvöll í Grafarholti ásamt Íþrótta og tómstundanefnd Hfj um vorið í boði Frisbígolfsambands Íslands. Einnig hittust fulltrúar félagsins og frisbígolfhreyfingarinnar og skoðuðu hugsanlega legu frisbígolfvallar norðan við og í vesturhlíðum Selhöfða og út í Selhraunið. Skemmst er frá því að segja að stjórn félagsins leyst engan vegin á hugmyndir frisbígolfmanna og stakk frekar upp á velli út í Selhrauninu. Frisbígolfurum leyst ekkert á þá hugmynd. Nýlega fréttist svo að verið væri að skoða af hálfu bæjarins og frisbígolfhreyfingarinnar og koma upp velli í skóginum við Ástjörn og upp í norðurhlíðar Ásfjalls. Helst voru það skemmdir á trjám sem hvarvetna má sjá í kringum frisbígolfvelli sem liggja í skógum, trjáfellingar í tengslum við gerð valla og umgengnismál sem ollu því að stjórn félagsins og framkvæmdastjóra leyst illa á hugmyndir um frisbígolfvöll inni í 40 ára gömlum, grisjuðum skógi sem frisbígolffólkið horfði hýru auga til og mest var til umræðu.
Undirritaður flutti erindi um starfsemi félagsins á morgunfundi Rótarýklúbbsins Straums en klúbburinn tók í fóstur landnemaspildu nyrst í Langholtinu í fyrra.
Nemendur í 7. bekk Víðistaðaskóla og 8. bekk Öldutúnsskóla komu síðastliðið vor og gróðursettu yrkjuplöntur í landnemaspildur skólanna sem liggja saman við Seldalsháls.
Nemendur við Áslandsskóla héldu uppteknum hætti og gróðursettu í grendarskóg í Áslandi. Nemendur 5. bekkjar Skarðshlíðarskóla gróðursettu sínar yrkjuplöntur í brekkurnar á móts við Hamranesflugvöll um haustið.
Ennfremur komu nemendur NÚ og gróðursettu í sína spildu við gamla Kaldárselsveginn.
Félagar í Rótarýklúbbnum Straumi gróðursettu í byrjun júní í nýja landnemaspildu klúbbsins nyrst í Langholti.
Starfsmenn Colas Ísland söfnuðu liði í júni og gróðursettu í landnemaspildu fyrirtækisins skammt norður af Fremsta-höfða.
Starfsmenn Batterísins Arkitekta og fjölskyldur þeirra hittust og gróðursettu í spildu Batterísins sunnan við Seldal.
Félagar í Rótarýklúbb Hfj gróðursettu í landnemaspildu klúbbsins í Klifsholtum um haustið.
Nokkrir starfsmenn Íslandsbanka komu svo gróðusettu í sjálfboðavinnu í hlíðarnar á móts við Hamranesflugvöll nokkrum dögum fyrir sjálfboðaliðadaginn.
Í september komu félagar í “Njóta og þjóta” saman og gróðursettu í landnemapildu klúbbsins við Buga norðan við Kaldárhraun.
Félagar í félaginu Þýsk – íslenska tengslanetinu gróðursettu í sína spildu í fyrra í Klifsholtum.
Einnig voru ýmsir einstaklingar sem eru með landnemaspildur til umráða duglegir við gróðursetningu og umhirðu.
Hvítasunnuhlaup Hauka fór fram 29. maí, annan í hvítasunnu. Hlaupið var frá Ásvöllum og um Höfðaskóg. Mikill fjöldi fólks tók þátt. Í kjölfarið styrkti almenningsíþróttadeild Hauka félagið enda stígarnir sem hlaupið er eftir við vatnið og um skóginn haldið við af skógræktarfélaginu.
Starfsmenn félagsins luku gerð göngustígs í spildu Rótarýklúbbs Hfj á árinu samkvæmt samningi. Stígurinn liggur í gegnum skógræktarland klúbbsins og upp á Syðra-Klifsholt.
Eins og venjulega færðum við karmelsystrum blóm og greinar í aðdraganda jóla. Blómin voru gjöf frá Grænum markaði.
Félagið fékk svokallaðan “vorviðar-styrk” frá Skógræktinni í fyrra til trjáplöntukaupa vegna gróðursetningar í hlíðarnar á móts við Hamranesflugvöll.
Einnig hlaut félagið rekstrarstyrk frá Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytinu.
Félagið fékk bætur frá bænum vegna trjáa sem felld voru vegna síðasta hluta Græna stígsins upp í Kaldársel sem lagður var með bundnu slitlagi í fyrra.
Varðandi nýtt deiliskipulag Gráhelluhrauns og nágrennis er búið að samþykkja það að hálfu bæjarins. Búið er að koma fyrir bílastæði við Kaldárselsveginn fyrir gesti Gráhelluhraunsskógar og leggja göngustíg frá stæðinu og tengja hann skógarstígnum í gegnum hraunið. Nýja deiliskipulagið felur m.a. í sér tvö mislæg gatnamót gangandi og ríðandi umferðar og gönguhringleiðar í skóginum ásamt öðru bílastæði við suðarenda Gráhelluhraunsskógar og tengingar yfir í Höfðaskóg fyrir gangandi umferð. Hollvinasamtök Gráhelluhrauns með Magnús Helgason í broddi fylkingar eiga þakkir skildar fyrir að koma því til leiðar að gerð bílastæðis væri hraðað áður en deiliskipulagið var samþykkt og framkvæmdir hæfust.
Umgengni um almenningssalerni við Skátalund sem opnað var fyrir þremur árum hefur almennt verið góð. Reyndar er bara annað salernir opið þar sem skemmdir voru unnar á hurðinni að hinu en það stendur til bóta.
Félagið sér um alla hreinsun í upplandinu þar með talið losun á ruslaílátum í Kaldárseli, við Hvaleyrarvatn, í Gráhelluhrauni, Vatnshlíð og víðar. Fer oft mikil vinna í að hreinsa sérstaklega þegar snjóa leysir á vorin og þegar mest er af fólki á svæðinu um páskana og á sumrin.
Ég vil minn á heimasíðu félagsins skoghf.is. Þar eru komnir inn helstu dagskrárliðir ársins hjá félaginu um fyrirvara um breytingar. Erum einnig á facebook. Nú eru félagsskírteinin rafræn. Allir gildir félagar eiga að hafa fengið sendan tengil til niðurhals í tölvupósti. Félagsskírteinið er geymt í veskis-smáforritinu í símanum. Nánari upplýsingar um virkjun félagsskírteinis eru á heimasíðu Skógræktarfélags Íslands, skog.is. Félagar í Skógræktarfélagi Hfj eru um þúsund talsins.
Fuglaskoðun félagsins er 20 aprí næstkomandi og “Líf í lundi” 22. júní í sumar.
Ég vil í lokin þakka stjórn félagsins, endurskoðanda, skoðunarmönnum reikninga og samstarfsfólki öllu fyrir þeirra framlag og góða samvinnu. Landsvirkjun og Vinnuskólinn fá sérstakar þakkir fyrir þeirra framlag ásamt Fjarðarkaup. Ekki má gleyma öllum sjálfboðaliðunum, kærar þakkir fyrir ykkar vinnu. Ég vil í því sambandi sérstaklega nefna Magnús Helgason, Vigfús, Vilhjálm Bjarnason, Gunna og Hadda Þórólfssyni, Línu, Önnu, Kalla, Önnu Stínu, Möggu Siggu og stjórnarmenn sem tóku þátt í jólatrjáasölu félagsins. Einnig sérstakar þakkir í til Bjarkar og Sölva, til Davids á Pallett til félaga í Larpinu og Listahóp Vinnuskólans.
