Fundargerð stjórnar Skógræktarfélags Hafnarfjarðar (1/2026)
Haldinn í Selinu þann 2. febrúar 2026, kl 17.30
Mætt: Sigurður Einarsson (formaður), Árni Þórólfsson, Hallgrímur Jónasson (ritari), Ingvar Viktorsson, Jónatan Garðarsson, Gyða Hauksdóttir ásamt Steinari Björgvinssyni framkvæmdastjóra
1 Stöðuyfirlit
Jólatrjáa salan gekk vel fyrir Jólin, alls voru seld 776 tré, auk 439 tröpputrjáa og 29 borðtrjáa. Langmest var selt af stafafuru sem jólatré eða 80%. Tæplega 45% seldra jólatrjáa eru frá okkur (SH), rúm 41% frá Skógræktarfélagi Árnesinga og tæp 14% frá Skógræktarfélagi Borgarfjarðar. Söluverðmæti jólatrjáa eru 11,7 millj. króna, auk þess voru seld tröpputré fyrir um 4,9 millj. kr og borðtré fyrir um 130 þúsund krónur. Heildarverðmæti sölu fyrir jólin eru um 16,32 millj. kr.
Starfsmenn vinna að grisjun í einum af elsta hluta skógarins í dag.
Tveir dyggir og vinnusamir félagsmenn, heiðursfélagar SH, féllu frá nýlega, þeir Þorkell Þorkelsson, d.14.11.2025 og Svanur Pálsson d. 14.12. 2025. Blessuð sé minning þeirra.
2. Aðalfund Skógræktarfélags Hafnarfjarðar
Ákveðið að stefna að aðalfundi félagsins þann 14. apríl n.k.
3. Fulltrúafundur Skógræktarfélags Íslands
Fulltrúafundur Skógræktarfélags íslands verður haldinn í húsnæði Íshesta þann 28. mars frá kl. 10.00 til kl 16.00, hér í næsta nágrenni. Fyrirhugað er að bjóða þátttakendum að njóta léttra veitinga á vegum félagsins í Selinu ásamt því að bjóða uppá gönguferð um skóginn. Gert er ráð fyrir að haldið verði erindi um Skógræktarfélag Hafnarfjarðar í tilefni 80 ára afmælis.
4. Launamál starfsmanna
Steinar framkvæmdarstjóri verður í sambandi við Sigurð formann varðandi launamál starfsmanna félagsins.
5. Tilboð í Sexhjól
Félagið hefur þörf fyrir öflugra sexhjól, fyrir liggur tilboð að upphæð 3,3 millj. kr fyrir nýtt hjól. Samþykkt að ganga til kaupa á hjólinu.
6. Afmælisár
Skógræktarfélag Hafnarfjarðar er 80 ára í ár. Ræddar hugmyndir um hvernig helst má halda uppá 80 ára sögu félagsins. Stefnt er að því að standa veglega að hefðbundnum viðburðum, s.s. Líf í lundi. Auk þess að standa myndalega að öðrum viðburðum s.s. sveppagöngu, gönguferð(um) með Jónatani, rósagarðsgöngu og fl.
Auk þess mun vera skoðað að gefa út blað, ef stuðningur fæst til þess. Í blaðinu verði stiklað á stóru í sögu félagsins auk þess sem öflugra starfsmanna og félaga verði minnst.
7. Erfðafestuland
Til umræða kom erfðafestuland sem er vestan við Krísuvíkurveginn. Jónatan var með gönguhóp á svæðinu fyrir skömmu og hitti þar fyrir afkomanda sem stendur að einum af fjórum hlutum þessa 50 hektara erfðafestulands. Viðkomandi stakk uppá að eiga fund með fulltrúum Skógræktarfélagsins, í því augnamiði að meta hvort hagsmunir þeirra og félagsins geta ekki farið saman, s.s. að opna svæðið fyrir almenningi.
Fleira ekki gert fundi slitið 19.00.
