Erum að ryðja helstu gönguleiðir í skóginum
Starfsmenn félagsins eru að ryðja snjó af helstu gönguleiðum í upplandinu það er að segja kringum Hvaleyrarvatn, Kaldárselsstíginn og göngustíginn í gegnum Gráhelluhraunsskóg. Á myndinni sést Jökull Gunnarsson skafa snjó af Kaldárselsstígnum í dag.