Grisjað í Langholtinu
Undanfarnar vikur hafa starfsmenn félagsins unnið að grisjun og snyrtingu skóga félagsins m.a. í Langholti, Kjóadalshálsi og víðar. Einnig hefur verið farið um vegi í upplandinu og tré og runnar sem skaga út á akvegi og göngustíga söguð, klippt og snyrt. Þessi mynd var tekin 30. janúar 2019 í Langholtinu skammt sunnan við Þormóðshöfða.…

