Hinn árlegi "Skógar- og útivistardagur fjölskyldunnar" verður haldinn hátíðlegur laugardaginn 25. júlí 2015. Dagskrá stendur frá kl. 14.00 – 17.00. Allar hugmyndir að dagskrárliðum vel þegnar. Takið daginn frá. Nánar auglýst síðar. Myndin er tekin á "Skógar- og útivistardeginum" í fyrra þegar Sr. Jón Helgi Þórarinsson skírði stúlkubarn, hana Björk litlu, í Bænalundi í Höfðaskógi.