Fundarstjóri, heiðursfélagar, kæru félagar og gestir.
Það voraði snemma í fyrra. En svo kom bakslag í maí með norðanátt og frosti. Þrátt fyrir þurrk í maí og júní sluppum við sem betur fer enn eitt árið við gróðurelda.
Skógurinn kom almennt vel undan vetri. Trjávöxtur var góður enda sumarið sólríkt og hlýtt. Óvenjumikið var af reyniberjum um haustið en lítð bar á öðru trjáffræi. Þó var áberandi mikið fræfall hjá öspinni seinni part sumars.
Meindýr og sjúkdómar voru ekki áberandi nema þá asparglytta á viðju og ösp. Aðeins bar á sitkalús hér og þar í skóginum en alls ekki til vandræða.
Um 20 manna vinnuhópur kostaður af Landsvirkjun starfaði hjá okkur í júní og júlí eins og síðastliðin rúmlega 20 ár. Flokkstjórar voru Heimir Marel og Sólveig Guðrún. Unnu þau að gróðursetningu, hreinsun, stígagerð og fleiru.
Einnig starfaði hjá félaginu hópur frá Vinnuskóla Hafnarfjarðar eins og venjan er. Flokkstjóri var Svanhvít Ásta Jónsdóttir, aðstoðarflokkstjórar Guðrún Jónsdóttir, Breki og Þórir.
Laugardaginn 19. janúar bauð félagið upp á fuglaskoðun í Höfðaskógi í tengslum við „garðfuglahelgina“ í samstarfi við Fuglavernd. Nokkrir mættu þrátt fyrir slæmt veður.
Á alþjóðlegum degi skóga 21. mars var fræðsluviðuburður í Grasagarði Reykjavíkur í vetrargreiningu trjáa í samstarfi við GR, SÍ og SH.
Aðalfundur félagsins var haldinn hér í Hafnarborg þann 28. mars. Að loknum venjulegum aðalfundarstörfum flutti Brynhildur Bjarnadóttir lektor við Háskólann á Akureyri erindi um kolefnisbindingu í trjám.
Viðarvinir, hópur handverksfólks með Sigurjón Ingvarsson í broddi fylkingar, voru með sýningu á trémunum í bækistöðinni laugardaginn 8. júní.
Undirritun samnings um kolefnisbindingu Hafnarfjarðarbæjar við Kolvið fór fram við bækistöðvar félagsins 19. júní.
Fjölskylduhátíðin „Líf í lundi“ fór fram í einmuna blíðu laugardaginn 22. júní. Árni leiddi göngu um skóginn, Larpið kíkti í heimsókn, Ingvar grillaði pylsur á hlaðinu við Þöll, Íshestar buðu krökkum á bak og fleira. Flest skógræktarfélög á landinu taka þátt í „Líf í lundi“ hvert í sínu héraði. Dagskráin er auglýst á skógargáttinni og víðar. Flott framtak sem Skógræktarfélag Íslands hrinti af stað í hitteðfyrra.
15. ágúst bauð félagið upp á kvöldgöngu um trjá- og rósasafnið í Höfðaskógi í samstarfi við Íþrótta- og tómstundaráð.
5. september fór verðlaunaafhending vegna „Snyrtileikans 2019“ fram í Þöll. Starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar sjá um alla framkvæmd Snyrtileikans en félagið lánar aðeins aðstöðuna.
9. september hittust um 20 afkomendur og vinir Andrésar Gunnarssonar vélstjóra í Andrésarlundi í Höfðaskógi. 30 trjáplöntur voru gróðursettar og boðið upp á kaffiveitingar að gróðursetningu lokinni.
Þriðjudagskvöldið 17. september bauð félagið upp á sveppafræðslu og sveppatínslu undir leiðsögn Helenu Mörtu Stefánsdóttur. Yfir 20 manns mættu og þótti viðburðurinn heppnast einstaklega vel.
Sunnudagsmorguninn 22. september var blásið til hins árlega sjálfboðaliða-gróðursetningardags. Gróðursettar voru hátt í 800 trjáplöntur, 2-3 ára, í brekkurnar á móts við Hamranesflugvöll þar sem öskuhaugar bæjarins voru áður. Um 25 manns mættu. Fólk á öllum aldri og gróðursettu þrátt fyrir grenjandi rigningu. Allir fengu svo heita súpu í bækistöðinni að gróðursetningu lokinni.
Miðvikudaginn 25. september fór sýnikennsla í verkun og rætingu sígrænna græðlinga fram í Þöll í samstarfi við sígræna klúbb Garðyrkjufélagsins.
Þriðjudagskvöldið 29. október var svo hin árlega ljósaganga í samstarfi við Krabbameinsfélag Höfuðborgarsvæðisins. Eins og síðastliðin ár var hrekkjavökuþema. Sjálfboðaliðar komu að undirbúningi göngunnar ásamt larpinu. Boðið var upp á heitt kakó og kleinur að göngu lokinni. Yfir 100 manns mættu.
Jólatrjáasala félagsins fór sem endranær fram í desember. Fjöldi sjálfboðaliða kom að jólatrjáasölu félagsins eins og svo oft áður. Fjarðarkaup styrkti félagið á þann hátt að allir fengu heitt súkkulaði og piparkökur. Marteinn Sindri Jónsson kom á aðventunni og spilaði og söng og Sveinn Sigurjónsson kom og lék á harmonikkuna.
Ýmsir sóttu félagið heim á árinu. Í byrjun febrúar kom hópur stúdenta í fuglafræði í heimsókn ásamt Gunnari Hallgrímssyni fuglafræðingi.
Í lok mars kom verkefnastjórn „safe climbing“ í heimsókn, danir og slóvenar ásamt Ágústu og Björgvin frá Landbúnaðarháskólanum. Verkefnið gengur út á klifur í trjám á öruggan hátt og snyrtingu trjáa með hand- eða keðjusögum.
Nemendur 6. bekks Öldutúnsskóla heimsóttu félagið 1. apríl ásamt bekkjatenglum. Um 50 manns mættu og fengu leiðsögn um skóginn. Annar rúmlega 40 manna nemendahópur ásamt kennurum frá sama skóla heimsóttu svo félagið um miðjan apríl í tengslum við þemadaga skólans.
Nemendur í leikskólanum Hvammi kíktu í júní og gróðursettu eitt tré í leiðinni.
Umhverfishópur Vinnuskóla Hfj heimsótti félagið síðastliðið sumar. Einnig gönguhópur Félags eldri borgara í Hfj.
Nemendur í skógfræði og umhverfisskipulagi við Landbúnaðarháskóla Íslands heimsóttu félagið síðsumars ásamt Guðríði Helgadóttur kennara. Einnig komu nemar í blómaskreytingum við sama skóla í vettvangsferð um haustið.
65 ára stúdentar frá MR, um 40 manns, heimsóttu félagið snemma síðastliðið haust. Leiðsögumenn voru Jónatan Garðarsson og Þorvaldur S. Þorvaldsson.
Skokkhópur Hauka komu í heimsókn í byrjun nóvember.
Eins og svo mörg undanfarin ár heimsótti sendinefnd frá Cuxhaven félagið í byrjun aðventu ásamt stjórn vinabæjarfélagsins Cuxhaven-Hafnarfjörður og fleiri Cuxhaven-vina. Boðið var upp á hressingu í bækistöðvum félagsins og skipts á gjöfum. Svo var auðvitað ekið að landnemaspildu vinabæjarfélagsins við Hvaleyrarvatn og dáðst að skóginum sem þar er að vaxa upp.
Nemendur og kennarar leikskólanna Stekkjaráss, Víðivalla, Hvamms og Hlíðarbergs heimsóttu okkur á aðventunni, fundu sér fallegt furujólatré og fengu kakó og piparkökur í bækistöðvum félagsins.
Nemendur úr Öldutúnsskóla gróðursettu í sína landnemaspildu á Kjóadalshálsi. Nemendur í Áslandsskóla gróðursettu í grenndarskóg við skólann. Nemendur Nú – framsýn menntun gróðursettu í sína spildu, nemendur Víðistaðaskóla gróðursettu í sína landnemaspildu. Gildisskátar gróðursettu í sitt land við Hvaleyrarvatn.
Sjálfstæðisflokkurinn gróðursetti 90 plöntur í sína spildu við Gamla Kaldárselsveginn seinni part maí.
Lionsklúbburinn Ásbjörn gróðursetti í sína landnemaspildu í Klifsholtum í júní. Lionsklúbbur Hafnarfjarðar fékk spildu við hlið Ásbjarnar og gróðursett var í tengslum við fund Alþjóðastjórnar Lionshreyfingarinnar en Guðrún Björt Ingvadóttir er alheimsforseti hreyfingarinnar um þessar mundir. Þau merktu spilduna með fallegum skildi á stuðlabergsstein.
Starfsemenn Hlaðbæjar-Colas gróðursettu í sína landnemaspildu við Fremsta Höfða í fyrrasumar.
Bahá-íar héldu áfram að gróðursetja í sína landnemaspildu sem þeir fengu í hitteðfyrra.
Fulltrúafundur skógræktarfélaganna var haldinn 16. mars í Félagsheimili Rafveitunnar, Elliðaárdal. Starfsmenn og stjórn félagsins sóttu ráðstefnuna. Meginþemu fundarins voru Landgræðsluskógar og Græni stígurinn.
Árni og Gunnar Þórólfssynir sóttu fagráðstefnu skógræktarinnar í bryjun aprí sem haldin var austur á Hallormsstað. Landnotkun og loftslagsmál voru þemu ráðstefnunnar.
Félagið styrki kvenfélag Fríkirkjunnar með greinum til leiðisgreina-gerðar. Ennfremur gaf Skógræktarfélagið Meðferðarheimilinu í Krýsuvík og Barnaspítalanum sitt hvort jólatréið. Einnig fengu handverkskennarar greinar og viðarbúta hjá félaginu.
Larpið fékk að nota aðstöðuna félagsins í byrjun maí. Og starfsfólk Fjarðarkaupa hittist í Þöll snemma í september en Fjarðarkaup hefur lengi verið einn helsti styrktaraðili félagsins.
Hjólakeppni Fjallahjólreiðadeildar Brettafélags Hfj. fór fram í upplandinu í lok maí. Félagið lagði blessun sína yfir þær leiðir sem farnar voru.
Utanvegahlaup Hauka og Sportís fór fram annan í Hvítasunnu eins og venjulega. Hlaupið var um upplandið. Tæplega 500 hlauparar skiluðu sér í mark. Almenningsíþróttadeild Hauka styrkti félagið í fyrra eins undanfarin ár en Skógræktarfélagið hefur séð um að hreinsa og lagfæra stíga sem notaðir eru í þessu vinsæla hlaupi.
Í fyrra-sumar færðu heiðurshjónin Halldóra Halldórsdóttir og Þórólfur Þorgrímsson félaginu Avant liðlétting að gjöf. Þetta tæki hefur létt okkur mikið störfin. Tækið nýtist til alls kyns flutninga, mokturs o.s.frv. Við erum óendanlega þakklát fyrir þessa höfðinglegu gjöf.
Félagið fékk aðra veglega gjöf í fyrra. Björk Bjarnadóttir og Sölvi Steinarr Jónsson færðu félaginu innréttaðan húsgám með öllu tilheyrandi. Ég vil nota tækifærið og þakka Björk og Sölva fyrir þessa veglegu gjöf sem nýttist vel í sumar sem aðstaða fyrir sumarvinnu-starfsmenn.
Lionsklúbburinn Ásbjörn færði félaginu að gjöf 3 bekki sem komið var fyrir við stíginn í Værð, Húshöfða, Höfðaskógi. Formleg afhending fór fram 17. október í Þöll.
Umhverfis- og auðlindaráð styrkt félagið í fyrra um kr. 500.000,- til gróðursetningar í Hamranesi.
Árni Þórólfsson og undirritaður fórum austur á Snæfoksstaði síðastliðið haust og fengum að velja jólatré úr skógum Skógræktarfélags Árnesinga þaðan sem hluti þeirra jólatrjáa kom sem félagið bauð upp á í fyrra. Einnig keypti félagið jólatré af Skógræktinni, Skógræktarfélagi Íslands og tveimur einkaaðilum. Einnig var talsvert tekið af jólatrjám í skógum félagsins eins og allt það sem notað var í Jólaþorpinu og við verslanir og önnur fyrirtæki í bænum.
Samningur við bæinn um svokallaða umhverfisvakt var endurnýjaður í byrjun árs. Samningurinn felur í sér hreinsun á upplandinu, losun á ruslaílátum við Hvaleyrarvatn og víðar, hreinsun á grillum við vatnið og þess háttar. Einnig var gerður í fyrsta sinn samningur við sveitarfélagið um snjóruðning á völdum gönguleiðum í skógum félagsins síðastliðinn vetur. Snjóruðningur af hálfu félagsins varð fyrst mögulegur eftir að félagið eignaðist sexhjól árið 2017 og síðan liðléttinginn í fyrra.
Skógarumhirða er stór þáttur í starfi félagsins og hefur vaxið eftir því sem skógar félagsins eldast, stækka að umfangi og umferð um þá eykst. M.a var unnið að grisjun skógarsins í Selhöfða síðastliðinn vetur. Sá efniviður sem nýtilegur er er notaður í eldivið og kurl.
Okkar ástkæra Hólmfríður Finnbogadóttir féll frá þann 28. nóvember í fyrra. Hún var jarðsett í kyrrþey að eigin ósk þann 5. desember. Hólmfríður hóf störf hjá félaginu sem sumarstarfsmaður árið 1980. Árið 1989 var Hólmfríður kosin formaður félagsins og tók þá við því kefli af Ólafi Vilhjálmssyni. Hólmfríður varð síðar fyrsti eiginlegi framkvæmdastjóri félagsins og gengdi hún því starfi til ársins 2013. Öll aðstaða félagsins breyttist mjög til hins betra í stjórnartíð Hólmfríðar. Félögum fjölgaði einnig mikið. Hún var alltaf að vinna fyrir félagið og lagði allt undir. Hún skipulagði tvo aðalfundi Skógræktarfélags Íslands hér í bæ á 50 og 60 ára afmæli félagsins. Hún var afar iðin við að kynna félagið, bjóða hópum í skóginn og skipuleggja alls kyns viðburði. Hún hafði yndi af því að vinna með ungu fólki og passaði alltaf upp á að þakka fyrir allt sem fólk gerði fyrir félagið, passaði upp á afmælisdaga stjórnarliða og samstarfsmanna og fór í allar jarðarfarir félaga ef hún gat. Við Hólmfríður höfðum unnið lengi saman og ýmislegt brallað. Ég er þakklátur fyrir samstarfið með Hólmfríði og kveð hana í Guðs friði.
Ég vil í lokin þakka stjórn félagsins fyrir samstarfið á árinu, endurskoðanda félagsins, skoðunarmönnum reikninga og samstarfsmönnum kærlega fyrir gott samstarf á síðastliðnu ári. Einnig vil ég nefna Landsvirkjun og Vinnuskóla Hafnarfjarðar og þakka þessum aðilum fyrir gott samstarf. Þakkir til starfsmanna bæjarins sem hafa reynst okkur hjálplegir og starfsmanna Skógræktarfélags Íslands. Fjarðarkaupum þakka ég stuðninginn. Síðast en ekki síst vil ég þakka öllum sjálfboðaliðum sem lagt hafa okkur lið á einn eða annan hátt á síðastliðnu ári.
