Búið er að stofna kröfur í heimabanka vegna árgjalds 2025. Árgjaldið er kr. 5.000,-. Árgjald var síðast innheimt haustið 2024. Með því að styðja félagið hjálpar þú til við að byggja upp skóga félagsins og útivistarsvæði í upplandi Hafnarfjarðar. Umsjónarsvæði félagsins eru m.a. Höfðaskógar við Hvaleyrarvatn, Gráhelluhraunsskógur, Seldalur og Undirhlíðar. Félagið sér um alla hreinsun, losun á sorpílátum, hreinsun á almenningssalernum á svæðinu og fleira. Stígagerð, grisjun og gróðursetning er einnig hluti af starfsemi félagsins. Allir félagar fá 15% afslátt í Þöll og í jólatrjáasölu félagsins. Fjölmörg önnur fyrirtæki í græna geiranum veita afslátt gegn framvísun félagsskírteinis. Nú er félagsskírteinið rafrænt. Ef þú hefur ekki enn virkjað rafrænt félagsskírteini hafðu þá samband á netfangið skoghf@simnet.is eða við Ragnhildi Freysteinsdóttur hjá Skógræktarfélagi Íslands á netfangið rf@skog.is
Hægt er að gerast félagi með því að fylla út skemað undir flipanum „Um félagið“ hér efst á síðunni og svo „gerast félagi“. Félagar fá senda slóð í tölvupósti til að virkja rafrænt félagsskírteini. Það eru allir þeir aðilar sem veita afslátt listaðir upp.

